Ferill 1011. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2283  —  1011. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um ráð, nefndir, stjórnir, starfshópa og stýrihópa.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað voru á árinu 2022 stofnaðar margar nýjar nefndir, stjórnir, ráð, stýrihópar eða starfshópar sem heyra undir ráðuneytið og hver er áætlaður kostnaður vegna þeirra?

    Á árinu 2022 voru stofnaðar fimm nýjar nefndir, stjórnir, ráð, stýrihópar eða starfshópar. Enginn kostnaður féll til á árinu 2022 vegna nýrra nefnda, stjórna og starfshópa.