Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 809, 154. löggjafarþing 450. mál: svæðisbundin flutningsjöfnun (breytingar á úthlutunarreglum).
Lög nr. 104 28. desember 2023.

Lög um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011 (breytingar á úthlutunarreglum).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
  1. 2. mgr. orðast svo:
  2.      Framleiðandi á svæði 1, sbr. 2. mgr. 4. gr., fær 10% endurgreiðslu af flutningskostnaði á vöru ef lengd ferðar er a.m.k. 150 km en 15% ef ferð er lengri en 390 km. Framleiðandi á svæði 2, sbr. 2. mgr. 4. gr., fær allt að 20% endurgreiðslu af flutningskostnaði á vöru ef lengd ferðar er 150–390 km en allt að 30% ef ferð er lengri en 390 km.
  3. Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ekki skal lækka hlutföll samþykktra umsókna sem eru undir 1,25% af fjárveitingu hvers árs né lækka samþykktar umsóknir niður fyrir 1,25% af fjárveitingu hvers árs hjá sama aðila.


2. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Ráðherra skal fyrir árslok 2024 gefa Alþingi skýrslu sem felur í sér áætlun um hvernig styrkir til jöfnunar á flutningskostnaði olíuvara verði lækkaðir í þrepum og að lokum felldir niður á gildistíma laganna.

3. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2024.

Samþykkt á Alþingi 15. desember 2023.