Ferill 713. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1067 — 713. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um mat Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna (FSRE) á húsnæðisþörf stofnana ríkisins.
Frá Ágústi Bjarna Garðarssyni.
1. Getur ráðherra upplýst nánar um kröfur FSRE sem lægstbjóðandi uppfyllti ekki, sbr. svar ráðherra við 3. tölul. fyrirspurnar á þskj. 1651 á 153. löggjafarþingi? Hverjar voru kröfur húslýsingar? Svar óskast sundurliðað eftir hverju verkefni fyrir sig.
2. Hver var upphæð tilboðs lægstbjóðanda og þess tilboðs sem var tekið? Svar óskast sundurliðað eftir hverju verkefni fyrir sig.
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.