Ferill 551. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1203  —  551. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um eftirlit með snyrtistofum og brot á lögum um handiðnað.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mörgum snyrtistofum hefur lögreglan haft eftirlit með á síðastliðnum þremur árum til að kanna hvort starfsmenn uppfylli skilyrði þess að starfa sem snyrtifræðingar í samræmi við lög um handiðnað í ljósi þess að lögreglustjórar hafa eftirlit með framkvæmd ákvæða laganna og að leita má úrskurðar dómstóla, sbr. 3. mgr. 2. gr. laganna, og þess að snyrtifræði telst til löggiltrar iðngreinar? Óskað er sundurliðunar eftir því hvort eftirlit var viðhaft á grundvelli frumkvæðiseftirlits lögreglu eða innsendrar kæru.
     2.      Hversu margar snyrtistofur hafa verið ákærðar síðastliðin þrjú ár vegna brota á lögum um handiðnað?

    Lögreglan hefur tiltekin lögbundin verkefni sem eru tilgreind í lögreglulögum, nr. 90/1996, lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, og ýmsum sérlögum. Á grundvelli laga um handiðnað, nr. 42/1978, ber lögreglu að hafa eftirlit með framkvæmd ákvæða laganna.
    Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra hefur lögreglan á síðastliðnum þremur árum haft til rannsóknar tvær snyrtistofur vegna brota á lögum um handiðnað, á grundvelli ábendingar, en í báðum tilvikum var rannsókn hætt.