Lög nr. 2 10. janúar 1997 (áður nr. 16/1965, endurútgefin samkvæmt lögum nr. 141/1996, 58. gr.)
Lög um Lífeyrissjóð hjúkrunarkvenna.
Fjármálaráðherra staðfestir hvort samþykktir sjóðsins og breytingar á þeim séu í samræmi við þessi lög og önnur lög um lífeyrissjóði að fenginni umsögn bankaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Sjóðfélagar bera eigi ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins nema með iðgjöldum sínum.
Launagreiðendur greiða 6% af föstum launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót, er sjóðfélagi tekur hjá þeim, í iðgjöld til sjóðsins og skal greiða þau sjóðnum samtímis iðgjöldum sjóðfélaga.
Þegar sjóðfélagi hefur greitt iðgjöld til sjóðsins í 32 ár falla iðgjaldagreiðslur hans niður. Þó er sjóðfélaga, er gegnt hefur um lengri eða skemmri tíma hlutastarfi, heimilt að greiða áfram iðgjald til sjóðsins af föstum launum sínum fyrir dagvinnu allt að því marki að jafngildi iðgjaldagreiðslu af launum fyrir fullt starf í 32 ár. Launagreiðanda skal þá skylt að greiða iðgjald að sínum hluta, sbr. 3. mgr. Eftir að iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga falla niður samkvæmt þessari málsgrein eða 4. mgr. 8. gr. greiðir launagreiðandi hans 10% af launum þeim sem tilgreind eru í 3. mgr. í iðgjald til sjóðsins.
Upphæð ellilífeyris er hundraðshluti af þeim föstu launum fyrir dagvinnu, persónuuppbót og orlofsuppbót samkvæmt kjarasamningum sem við starfslok fylgja stöðu þeirri fyrir fullt starf er sjóðfélagi gegndi síðast. Hundraðshluti þessi fer eftir iðgjaldagreiðslutíma og starfshlutfalli sjóðfélagans og er 2% fyrir hvert ár í fullu starfi sem iðgjöld hafa verið greidd fyrir, en hlutfallslega lægri fyrir minna starfshlutfall. Fyrir hvert fullt ársstarf eftir að iðgjaldagreiðslu lýkur og þar til sjóðfélaginn öðlast rétt til að láta af störfum og fá ellilífeyri bætist við 1% af föstum árslaunum fyrir fullt starf en 2% fyrir hvert fullt ársstarf eftir að iðgjaldagreiðslu er lokið og hann hefur öðlast rétt til að fá lífeyri.
Eftir að taka lífeyris hefst skulu breytingar á lífeyrisgreiðslum síðan ákveðnar til samræmis við meðalbreytingar sem verða á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu, sbr. 2. mgr., og skal Hagstofa Íslands reikna þær mánaðarlega.
Þegar sjóðfélagi hefur náð því að samanlagður lífaldur og iðgjaldagreiðslutími er 95 ár, hann er orðinn 60 ára og lætur af störfum, á hann rétt á lífeyri úr sjóðnum. Sjóðfélagi, sem notfærir sér þessa reglu, skal greiða iðgjald til sjóðsins þar til 95 ára markinu er náð. Lífeyrisréttur hans skal vera 2% fyrir hvert ár í fullu starfi sem iðgjöld hafa verið greidd fyrir, en hlutfallslega lægri fyrir skemmra starfstímabil og minna starfshlutfall, en þó ekki meira en 64% að náðu 95 ára markinu. Iðgjaldagreiðsluskylda sjóðfélaga fellur niður þegar 95 ára markinu er náð. Sjóðfélagi, sem nær 95 ára markinu eftir að hann nær 64 ára aldri, getur ekki nýtt sér heimild samkvæmt þessari málsgrein.
Lífeyrisréttur hjá þeim sem njóta útreiknings skv. 4. mgr. skal aukast um 2% fyrir hvert ár í fullu starfi frá því iðgjaldagreiðsluskyldu lýkur og þar til taka lífeyris hefst, en um hlutfallslega lægri hundraðshluta fyrir skemmra starfstímabil og minna starfshlutfall.
Hafi sjóðfélagi gegnt hærra launuðu starfi eða störfum í a.m.k. tíu ár fyrr á sjóðfélagatíma sínum í Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga skal miða lífeyrinn við hæst launaða starfið, enda hafi hann gegnt því í a.m.k. tíu ár, ella skal miða við það hærra launaða starf sem hann að viðbættum enn hærra launuðum störfum gegndi í a.m.k. tíu ár.
Heimilt er stjórn sjóðsins að greiða ellilífeyrisþegum á aldrinum 65 til 67 ára uppbót á lífeyri allt að einstaklingslífeyri almannatrygginga. Skilyrði fyrir slíkri uppbót er að sjóðfélaginn sé ekki lengur fullfær um að gegna starfi sínu. Til sönnunar því ber viðkomandi að leggja fram umsögn yfirmanns síns um starfshæfnina og vottorð tryggingayfirlæknis um heilsufar.
Sjóðfélagi, sem gegnir starfi sem uppfyllir aðildarskilyrði að sjóðnum skv. 17. gr., á ekki auk launa jafnframt rétt til lífeyris meðan hann gegnir því starfi.
Sama gildir um það starfsfólk sem hefur vinnuskyldu eingöngu á nóttunni, þ.e. á tímabilinu frá kl. 22.00 til 9.00, og skal þá álagsgreiðslan verða grundvöllur iðgjalda og lífeyrisréttinda.
Sjóðfélagi greiði 4% af vaktaálaginu í iðgjöld og launagreiðandi 6%.
Stjórn lífeyrissjóðsins ákveður á hverjum tíma hver skuli vera viðmiðunarmánaðarlaun þau sem lífeyririnn ákvarðast af og iðgjaldið er metið eftir.
Breyti stjórn lífeyrissjóðsins viðmiðunarmánaðarlaununum skal hún jafnframt ákveða hvort og þá hvernig skuli umreikna áunninn lífeyrisrétt fyrri ára.
Iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga af vaktaálagi skulu ár hvert metnar þannig til lífeyrisréttinda að reiknað sé hvað iðgjaldagreiðslur ársins samsvara margra mánaða iðgjaldagreiðslu af viðmiðunarlaunum.
Fyrir jafngildi hverrar tólf mánaða iðgjaldagreiðslu ávinnst réttur til ellilífeyris og örorkulífeyris sem nemur 2% af viðmiðunarlaunum og réttur til makalífeyris sem nemur 1% af viðmiðunarlaunum.
Hámark örorkulífeyris miðast við áunninn lífeyrisrétt skv. 8. gr. Hafi sjóðfélaginn greitt iðgjöld til sjóðsins undanfarin þrjú almanaksár og a.m.k. í sex mánuði á undanfarandi tólf mánuðum miðast hámark örorkulífeyris þó við áunninn lífeyrisrétt skv. 8. gr., að viðbættum einstaklingslífeyri almannatrygginga. Ef rekja má aðalorsök örorkunnar til starfs í þágu stöðu þeirrar sem öryrkinn gegndi skal þó reikna áunninn lífeyrisrétt eins og sjóðfélaginn hefði gegnt stöðu sinni til 65 ára aldurs.
Sé örorkan milli 10% og 50% er örorkulífeyririnn sami hundraðshluti af hámarksörorkulífeyri eins og örorkan er metin. Sé örorkan metin 50% til 75% er örorkulífeyririnn 50% af hámarkinu að viðbættum 2% af því fyrir hvert 1% sem örorkan er metin umfram 50%. Sé örorkan metin 75% eða meiri greiðist hámarksörorkulífeyrir að frádregnum örorkulífeyri almannatrygginganna. Þegar sjóðfélagi, sem er metinn undir 75% öryrki, nær 65 ára aldri fær hann greiddan ellilífeyri samkvæmt ákvæðum 8. gr. Frá sama tíma fellur niður örorkulífeyrir hans. Þó skal hann halda til 67 ára aldurs þeim hluta hans sem miðaður er við lífeyri almannatrygginga.
Skylt er sjóðfélaga, sem sækir um örorkulífeyri úr sjóðnum eða nýtur hans, að láta stjórn sjóðsins í té allar þær upplýsingar um heilsufar sitt sem nauðsynlegar eru til að dæma um rétt hans til örorkulífeyris.
Stjórn sjóðsins er heimilt að lækka eða fella niður örorkulífeyri þeirra öryrkja sem fá starfsorku sína aftur að nokkru eða öllu leyti. Sömuleiðis ber stjórn sjóðsins að hækka örorkulífeyrinn ef örorkan vex til muna og án sjálfskaparvíta frá því sem hún var metin við fyrri ákvarðanir, enda hafi öryrkinn á þeim tíma, sem örorkan óx, ekki verið í þjónustu annarra en þeirra aðila sem tryggja í sjóðnum hjúkrunarfræðinga er starfa í þeirra þjónustu.
Upphæð makalífeyris er helmingur af áunnum ellilífeyrisrétti hins látna sjóðfélaga. Makalífeyrir hækkar síðan um 20% af launum þeim er hann miðast við ef hinn látni sjóðfélagi hefur verið í fullu starfi við starfslok, en hækkunin verður hlutfallslega lægri ef sjóðfélaginn hefur verið í lægra starfshlutfalli við starfslok. Viðbótarlífeyrir þessi greiðist þó einungis ef hinn látni sjóðfélagi hefur uppfyllt eitt af þremur eftirgreindum skilyrðum:
- 1.
- Hann hafi verið í starfi er veitti honum aðild að sjóðnum við andlátið.
- 2.
- Hann hafi hafið töku lífeyris fyrir andlátið og upphaf lífeyristöku hans hafi verið í beinu framhaldi af starfi sem veitti honum aðild að sjóðnum.
- 3.
- Hann hafi greitt iðgjöld til sjóðsins sem nemur iðgjaldagreiðslum af fullu starfi í 15 ár eða meira og ekki greitt iðgjald til annars sjóðs eftir að greiðslum til þessa sjóðs lauk.
Nú hefur sjóðfélagi gengið í hjónaband eftir að hann var orðinn 60 ára eða á þeim tíma er hann naut lífeyris úr sjóðnum eða hann var lagstur banaleguna og úrskurðar þá stjórn sjóðsins hvort eftirlifandi maki hans skuli njóta lífeyris úr sjóðnum eða eigi.
Réttur til lífeyris samkvæmt þessari grein fellur niður ef eftirlifandi maki gengur í hjónaband að nýju, en kemur aftur í gildi sé hinu síðara hjónabandi slitið, enda veiti það hjónaband eigi rétt til lífeyris úr sjóðnum. Veiti síðara hjónabandið einnig rétt til lífeyris má eftirlifandi maki velja um hvort hann tekur lífeyrinn eftir fyrri eða síðari makann.
Hafi hjúskap lokið með skilnaði skal útreikningur makalífeyris miðast við þann tíma er hinn látni sjóðfélagi hafði átt aðild að sjóðnum þegar hjúskap var slitið. Viðbótarlífeyrir skv. 2. mgr. greiðist ekki í því tilviki.
Þegar sjóðfélagi sem verið hefur tvígiftur deyr og lætur eftir sig maka og fyrrverandi maka á lífi skiptist makalífeyririnn á milli þeirra þannig að réttur fyrrverandi maka ákvarðast samkvæmt reglu 5. mgr. en réttur maka telst frá þeim degi er hinum fyrra hjúskap var slitið. Hliðstæð regla gildir séu rétthafar makalífeyris fleiri en tveir.
Hafi sjóðfélagi verið utan hjónabands við andlátið, en einstæð móðir hans, ógift systir hans eða annar ógiftur aðili hefur sannanlega annast heimili hans um árabil fyrir andlát hans, þó eigi skemur en fimm ár, er stjórn sjóðsins heimilt að greiða hlutaðeigandi makalífeyri, svo sem um ekkju eða ekkil væri að ræða. Á sama hátt er sjóðstjórn heimilt að greiða sambúðarmanni og sambúðarkonu lífeyri ef sjóðfélagi lætur eftir sig barn innan 18 ára aldurs sem hann hefur átt með hinu eftirlifandi. Einnig er sjóðstjórn heimilt að greiða sambúðarkonu eða sambúðarmanni lífeyri í 24 mánuði þótt ekki sé fullnægt skilyrðum 1. málsl. um sambúðartíma, eða ef sambúðaraðili er 50% öryrki eða meira.
Ef barnið á foreldri eða kjörforeldri á lífi, er sér um framfærslu þess, er samanlagður lífeyrir þess frá almannatryggingum og úr þessum sjóði 50% hærri en barnalífeyrir almannatrygginga. Að öðrum kosti er lífeyririnn tvöfaldur barnalífeyrir almannatrygginga.
Sama rétt öðlast börn og kjörbörn þeirra sjóðfélaga er njóta elli- eða örorkulífeyris úr sjóðnum, þó svo að barnalífeyrir úr þessum sjóði til barna eða kjörbarna örorkulífeyrisþega skal vera jafnmargir hundraðshlutar af fullum barnalífeyri eins og örorkulífeyrir hans er margir hundraðshlutar af hámarksörorkulífeyri.
Fósturbörn, er sjóðfélagi hefur framfært að mestu eða öllu leyti, njóta sama réttar og börnum og kjörbörnum er veittur hér að framan.
Sama regla gildir þegar sjóðfélagi verður af heilsufarsástæðum að láta af stöðu sinni, en tekur við öðru léttara og lægra launuðu starfi er veitir aðgang að sjóðnum. Þegar svo stendur á sem í þessari málsgrein ræðir um er viðkomandi heimilt að kaupa sér réttindi í sjóðnum fyrir þann tíma sem úr hefur fallið. Stjórn sjóðsins getur krafist vottorðs trúnaðarlæknis sjóðsins til sönnunar því að sjóðfélaginn verði að láta af stöðu sinni vegna heilsubrests.
Þegar lífeyrisgreiðslur skulu miðast við hærra launað starf en lokastarf skv. 1. eða 2. mgr., eða skv. 6. mgr. 8. gr., skal við ákvörðun um lífeyri miða við meðalhækkanir á launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu skv. 3. mgr. 8. gr. frá þeim tíma er starfsmaður lætur af sínu hærra launaða starfi og þar til taka lífeyris hefst.
Hafi starfsmaður látið af hinu hærra launaða starfi fyrir árslok 1996 skal þó miða breytingar á lífeyri við breytingar á þeim launum er starfinu fylgdu fram til ársloka 1996. Eftir það skal farið eftir reglu 3. mgr.
Sé staða eða starfi sjóðfélagans lagður niður á hann rétt á að vera áfram í sjóðnum og greiða iðgjöld sem miðuð séu við þau laun er hann hafði er staða hans var lögð niður og frá þeim tíma skulu iðgjaldagreiðslur síðan breytast til samræmis við meðalbreytingar sem verða á föstum launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu, sbr. 3. mgr. 8. gr.
Sjóðstjórninni er heimilt að nota sömu endurgreiðslureglu þegar sjóðfélagi flyst í annan sjóð sem viðurkenndur er af fjármálaráðuneytinu, eða kaupir sér lífeyri hjá tryggingafélagi eða stofnun sem starfar eftir reglum er fjármálaráðuneytið samþykkir, enda gildi þar sömu reglur um endurkaup og greiðslu lífeyris eins og ákveðnar eru í þessum lögum.
Á tilsvarandi hátt er sjóðstjórninni heimilt, að fengnu samþykki fjármálaráðherra, að veita viðtöku, vegna sjóðfélaga er gerist sjóðfélagi í þessum sjóði, fé því er kann að vera endurgreitt hans vegna úr sjóði, tryggingafélagi eða stofnun, sem að framan greinir, og veita honum réttindi í samræmi við það.
Einnig getur stjórnin, þegar sérstaklega stendur á, og með samþykki fjármálaráðherra, heimilað réttindakaup aftur í tímann, þó að ekki sé um að ræða yfirfærslu á réttindum annars staðar frá. Það skal meðal annars sett sem skilyrði fyrir slíkum réttindakaupum að mælt sé með þeim af forstöðumanni þeirrar stofnunar er sjóðfélaginn vinnur hjá, að gengið sé frá réttindakaupunum innan árs frá því hann var ráðinn og að hann sé eldri en 30 ára þegar hann öðlast aðgang að sjóðnum.
Heimilt er að endurgreiða iðgjald til erlendra ríkisborgara sem flytjast úr landi, enda sé slíkt ekki óheimilt samkvæmt milliríkjasamningum sem Ísland á aðild að.
Heimild til aðildar að sjóðnum hafa einnig aðrir hjúkrunarfræðingar sem aðild áttu að sjóðnum við árslok 1996 á meðan þeir starfa að hjúkrun, enda sé viðkomandi eigi ráðinn til skemmri tíma en eins árs, eða með a.m.k. þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Hjúkrunarfræðingar, sem aðild áttu að sjóðnum við árslok 1996 og starfa að félagsmálum á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, hafa jafnframt heimild til aðildar að sjóðnum, enda séu ráðningarkjör þeirra hin sömu og hjá öðrum sjóðfélögum.
Kjósi sjóðfélagi, sem 1.3. mgr. taka til, að greiða fremur iðgjald til A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins er honum það þó heimilt, enda hafi hann tilkynnt sjóðnum um þá ákvörðun sína fyrir 1. desember 1997. Fellur þá niður réttur hans til að greiða iðgjald til Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga. Eigi sjóðfélagi rétt til aðildar að sjóðnum skv. 2. eða 3. mgr. þarf samþykki launagreiðanda fyrir því að hefja iðgjaldagreiðslur til A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Sjóðfélagi, sem greiðir iðgjald til Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga eftir 1. desember 1997, getur einungis hafið greiðslu til A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins ef hann skiptir um starf, enda uppfylli hið nýja starf hans aðildarskilyrði að þeim sjóði, eða ef iðgjaldagreiðslur hans hafa fallið niður af öðrum ástæðum í tólf mánuði eða lengur.
Sjóðfélagi, sem ekki greiddi iðgjald til sjóðsins við árslok 1996, án þess þó að formlegu ráðningarsambandi hafi verið slitið, hefur sama rétt til aðildar að lífeyrissjóðnum og þeir einstaklingar sem falla undir 1.3. mgr.
Falli iðgjaldagreiðslur til Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga niður af öðrum ástæðum en tilgreindar eru í 5. mgr., t.d. vegna þess að viðkomandi sjóðfélagi hættir í starfi eða skiptir um starf, hefur sjóðfélagi áfram rétt til aðildar að sjóðnum, svo fremi hann hefji aftur starf sem veitir honum rétt til sjóðsaðildar innan tólf mánaða frá því að iðgjaldagreiðslur féllu niður. Ef iðgjaldagreiðslur til sjóðsins falla hins vegar niður í tólf mánuði eða lengri tíma, eða réttindaávinnsla án iðgjaldagreiðslu fellur niður í jafnlangan tíma, á viðkomandi einstaklingur ekki framar rétt á aðild að Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga.
Sjóðfélagar, sem greiddu iðgjald til Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga eða áunnu sér réttindi hjá sjóðnum án iðgjaldagreiðslu á árinu 1996, þó að þeir hafi ekki verið í starfi sem veitti þeim rétt til aðildar að lífeyrissjóðnum í lok þess árs, eiga sama rétt til aðildar að þessum sjóði og þeir sem um ræðir í 1.3. mgr. hefji þeir þar tilgreind störf á árinu 1997.
Lífeyrir greiðist með 1/ 12 árslífeyris fyrir fram á hverjum mánuði.
Hafi innan árs áður en taka lífeyris hefst verið gerðar breytingar á föstum launum fyrir dagvinnu hjá tilteknum sjóðfélaga, og þessar breytingar eru umfram almennar breytingar á launum opinberra starfsmanna, skal reikna skuldbindingar launagreiðenda skv. 1. mgr. út frá launum eins og þau voru fyrir þessa hækkun.
Jafnframt eiga sjóðfélagar, sem eru á aldrinum frá 45 ára til 55 ára við gildistöku laga þessara, rétt á að hefja töku lífeyris á aldrinum frá 60 ára til 65 ára, þó svo að þeir uppfylli ekki aldursskilyrði 4. mgr. 8. gr., enda hafi þeir þá látið af þeim störfum sem veitt hafa aðild að sjóðnum. Réttur til töku lífeyris samkvæmt þessari málsgrein ákvarðast þannig að við 60 ára aldursmarkið bætist 0,5 mánuðir fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði sem hlutaðeigandi sjóðfélaga vantar til að hafa náð 55 ára aldri við gildistöku laga þessara.
Hafi sjóðfélagi náð hæsta starfshlutfalli sínu samtals í eitt ár eða lengri tíma, án þess að um samfellu í iðgjaldagreiðslum í eitt ár hafi verið að ræða, er stjórn sjóðsins heimilt að leggja það til grundvallar útreikningi skv. 1. mgr., enda hafi sjúkdómsforföll, atvinnuleysi eða sambærilegar ástæður komið í veg fyrir samfelldar iðgjaldagreiðslur.
Að öðru leyti skal setja ákvæði í samþykktir sjóðsins til að koma í veg fyrir niðurfall réttinda eða tvítryggingu réttinda þegar sjóðfélagi flytur sig úr Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga í A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.