2002 nr. 6 31. janúar
Lög um tóbaksvarnir.
Virða skal rétt hvers manns til að þurfa ekki að anda að sér lofti sem er mengað tóbaksreyk af völdum annarra.
Þeir sem bera ábyrgð á barni skulu stuðla að því að það njóti réttar skv. 2. mgr., einnig þar sem reykingar eru ekki bannaðar skv. III. kafla þessara laga.
Með reykfærum er í lögum þessum átt við áhöld og búnað tengdan tóbaksreykingum, svo sem sígarettupappír, reykjarpípur og tæki til að vefja sígarettur, svo og annan slíkan varning.
Með munntóbaki er í lögum þessum átt við allar vörur, unnar að öllu eða einhverju leyti úr tóbaki til töku í munn, að undanskildum þeim sem eru ætlaðar til reykinga.
Með skrotóbaki er í lögum þessum átt við munntóbak í bitum eða ræmum, einkum ætlað til að tyggja.
Með neftóbaki er í lögum þessum átt við duft eða mylsnu, gerða að öllu eða einhverju leyti úr tóbaki til töku í nef.
Hlutverk tóbaksvarnanefndar er fyrst og fremst:
- 1.
- Að vera ríkisstjórn, heilbrigðismálaráðherra, Hollustuvernd ríkisins, Vinnueftirliti ríkisins og öðrum opinberum aðilum til ráðuneytis um allt er að tóbaksvörnum lýtur.
- 2.
- Að gera tillögur til stjórnvalda um ráðstafanir til þess að vinna gegn neyslu tóbaks í samræmi við lög þessi.
- 3.
- Að efna og hvetja til átaks í tóbaksvörnum og leitast við að samræma tóbaksvarnir í landinu.
- 4.
- Að veita aðstoð og leiðbeiningar varðandi tóbaksvarnir, m.a. með því að gefa út og útvega fræðslurit og önnur fræðslugögn.
- 5.
- Að fylgjast með tóbaksneyslu í landinu.
- 6.
- Að nýta reynslu og þekkingu annarra þjóða á sviði tóbaksvarna.
Fjármálaráðuneytið skal hafa samráð við tóbaksvarnanefnd um stefnumörkun varðandi innflutning og verðlagningu tóbaks.
Leita skal álits nefndarinnar um allar reglugerðir sem snerta tóbaksvarnir og tóbakssölu.
Tóbaksvarnanefnd starfar í samvinnu við Hollustuvernd ríkisins og Vinnueftirlit ríkisins.
Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um hlutverk og störf tóbaksvarnanefndar í reglugerð.
Sígarettupakka skal merkja sérstaklega með upplýsingum um tjöru- og nikótíninnihald.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um merkingar þessar, þar á meðal um aðvörunartexta, stærð hans, letur og annað sem máli kann að skipta.
Sá sem framleiðir, flytur inn eða selur tóbak má ekki án samþykkis heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra gefa með orðum eða táknum sínar eigin upplýsingar á umbúðum vörunnar um heilsufarsleg áhrif af neyslu hennar.
Tóbaksframleiðendur standa straum af kostnaði við merkingar samkvæmt þessari grein.
Bannað er enn fremur að sýna neyslu eða hvers konar meðferð tóbaks eða reykfæra í auglýsingum eða upplýsingum um annars konar vöru eða þjónustu og í myndskreytingu á varningi.
Með auglýsingum er í lögum þessum m.a. átt við:
- 1.
- hvers konar tilkynningar til almennings eða sérstakra markhópa, þar á meðal vörukynningar, útstillingar í gluggum verslana, hvers konar skilti og svipaðan búnað,
- 2.
- alla notkun hefðbundinna tóbaksvörumerkja (heita og auðkenna) eða hluta þeirra; undanskildar eru þó vörur sem framleiddar eru undir slíkum merkjum, enda gilda auglýsingatakmarkanir laganna um þær að öðru leyti,
- 3.
- hvers konar umfjöllun í fjölmiðlum um einstakar vörutegundir til annars en að vara sérstaklega við skaðsemi þeirra,
- 4.
- dreifingu vörusýna til neytenda.
Óheimilt er að setja á markað hér á landi tóbak undir vörumerkjum sem eru þekkt sem eða notuð sem merki fyrir aðra vöru eða þjónustu.
Hvers kyns framlög til viðburða eða starfsemi sem miða að því eða hafa þau beinu eða óbeinu áhrif að kynna tóbak eru bönnuð.
Tóbaki og vörumerkjum tóbaks skal komið þannig fyrir á útsölustöðum að það sé ekki sýnilegt viðskiptavinum.
Bannað er að flytja inn, framleiða og selja leikföng eða sælgæti sem er eftirlíking af sígarettum, vindlum eða reykjarpípum eða er ætlað að minna á tóbak með öðrum hætti, svo sem myndskreytingu.
Bannað er að selja tóbak úr sjálfsölum.
Ekki er heimilt að selja sígarettur í minna magni en heilum 20 stykkja pökkum.
Bannað er að flytja inn, framleiða og selja fínkornótt neftóbak og allt munntóbak, að undanskildu skrotóbaki.
Ekki má selja tóbak í skólum, stofnunum fyrir börn og unglinga eða á heilbrigðisstofnunum.
Þeir einir sem orðnir eru 18 ára mega selja tóbak. Heilbrigðisnefnd á viðkomandi eftirlitssvæði getur veitt tímabundna undanþágu frá þessu ákvæði um aldurstakmark. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setur í reglugerð að fenginni umsögn Vinnueftirlits ríkisins nánari ákvæði um undanþágur um aldurstakmark.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ákveður í reglugerð, að höfðu samráði við tóbaksvarnanefnd og í samræmi við gildandi tilskipanir Evrópusambandsins, hver skuli vera hæstu leyfileg mörk skaðlegra efna í tóbaki og tóbaksreyk og hvernig háttað skuli mælingum og eftirliti með því að þessi mörk séu virt.
Til þess að selja tóbak í smásölu þarf sérstakt leyfi heilbrigðisnefndar á viðkomandi eftirlitssvæði. Skal leyfi veitt til fjögurra ára í senn og verður einungis veitt einstaklingum eða lögaðilum sem fullnægja almennum skilyrðum laga um verslunaratvinnu. Heimilt er sveitarfélögum að innheimta gjald fyrir leyfi og eftirlit með starfsemi leyfishafa að fenginni umsögn heilbrigðisnefnda. Um gjaldtöku fer skv. 3. mgr. 12. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra er heimilt í samráði við umhverfisráðherra að setja í reglugerð nánari ákvæði um leyfisveitingu samkvæmt grein þessari.
Þeim sem selur tóbak í heildsölu er óheimilt að selja eða afhenda tóbak öðrum en þeim sem hafa leyfi til að selja tóbak í smásölu samkvæmt lögum þessum.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má leyfa reykingar á veitinga- og skemmtistöðum á afmörkuðum svæðum, en tryggja skal fullnægjandi loftræstingu, sbr. 4. mgr. Meiri hluti veitingarýmis skal þó ávallt vera reyklaus og tryggja skal að aðgangur að því liggi ekki um reykingasvæði.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má leyfa reykingar í tilteknum gistiherbergjum á hótelum og gistiheimilum. Í gistiskálum má hvorki leyfa reykingar í herbergjum né svefnskálum.
Þar sem reykingar eru leyfðar samkvæmt grein þessari skal séð fyrir loftræstingu sem fullnægir kröfum heilbrigðiseftirlits og þess gætt að reykingarnar mengi ekki andrúmsloftið þar sem þær eru ekki leyfðar.
Stjórnendur veitingastaða skulu leitast við að vernda starfsfólk gegn tóbaksreyk.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra er heimilt að setja nánari reglur um reykingar á veitinga- og gististöðum í samráði við samgönguráðherra og umhverfisráðherra, þar á meðal um flokkun þessara staða með tilliti til reykinga og loftræstingar.
Tóbaksreykingar eru bannaðar í öllu húsrými í sameign fjöleignarhúsa.
Ráðherra skal í samráði við menntamálaráðherra og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setja reglur um takmarkanir á tóbaksneyslu utan húss á íþróttasvæðum.
- 1.
- Í grunnskólum, vinnuskólum sveitarfélaga, á leikskólum, hvers konar dagvistum barna og í húsakynnum sem eru fyrst og fremst ætluð til félags-, íþrótta- og tómstundastarfa barna og unglinga.
- 2.
- Á opinberum samkomum innan húss sem einkum eru ætlaðar börnum eða unglingum.
- 3.
- Í framhaldsskólum og sérskólum.
- 4.
- Á heilsugæslustöðvum, á læknastofum og öðrum stöðum þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta. Það á þó ekki við íbúðarherbergi vistmanna á hjúkrunar- og dvalarheimilum en þar er þó skylt að gefa þeim sem ekki reykja kost á reyklausum íbúðarherbergjum.
- 5.
- Á sjúkrahúsum. Þó má leyfa reykingar sjúklinga í vissum tilvikum. Ráðherra setur reglugerð þar sem nánar er kveðið á um framkvæmd undanþágunnar.
- 6.
- Í fangelsum. Leyfa má þó reykingar í fangaklefum. Skylt er að gefa þeim sem ekki reykja kost á reyklausum fangaklefum.
Öll önnur tóbaksneysla er jafnframt bönnuð í grunnskólum, vinnuskólum sveitarfélaga, leikskólum, hvers konar dagvistum barna og húsakynnum sem eru fyrst og fremst ætluð til félags-, íþrótta- og tómstundastarfa ungmenna. Sama gildir um allar samkomur sem einkum eru ætlaðar ungmennum.
Forstöðumenn allra annarra opinberra stofnana en um getur í 1. mgr. skulu í samráði við starfsfólk gera áætlun um bann við reykingum innan viðkomandi stofnunar sem kemur til framkvæmda eigi síðar en fyrir lok ársins 2000. Innan sérhverrar stofnunar skal þó heimilt að gera ráð fyrir afdrepi þar sem reykingar eru heimilaðar.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skal setja reglur í samráði við félagsmálaráðherra og samgönguráðherra um takmarkanir á reykingum á vinnustöðum, þar á meðal í skipum, í samræmi við 1. mgr. og með tilliti til 1. gr. laga þessara.
Heimilt er forráðamönnum flugvéla að leyfa reykingar í hluta farþegarýmis í atvinnuflugi milli landa án viðkomu á Íslandi. Þess skal þó ávallt gætt að óþægindi skapist ekki fyrir þá sem ekki reykja.
- 1.
- Í skólum landsins. Sérstök áhersla skal lögð á slíka fræðslu í grunnskólum og skólum þeim sem mennta fólk til starfa að uppeldis-, fræðslu- og heilbrigðismálum.
- 2.
- Í fjölmiðlum.
Fræðsla um áhrif tóbaksneyslu og leiðir til að draga úr henni skal veitt á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum.
Tóbaksvarnanefnd ráðstafar fénu í samráði við ráðherra.
Nú er brotið gegn ákvæðum II. kafla og ekki farið að fyrirmælum heilbrigðisnefndar og getur nefndin þá beitt sömu úrræðum og talin eru upp í 27. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum.
Brjóti leyfishafi skv. 8. gr. gegn ákvæðum þeirrar greinar getur heilbrigðisnefnd á viðkomandi eftirlitssvæði að undangenginni áminningu svipt hann leyfinu. Við ítrekað brot ber heilbrigðisnefnd að svipta hann leyfinu og eins ef brot er stórfellt.
Rísi ágreiningur um ákvarðanir heilbrigðisnefndar er heimilt að vísa málinu til úrskurðarnefndar sem starfar skv. 31. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari breytingum.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd eftirlitsins.
Brot gegn ákvæðum 8. gr. eða reglum sem settar eru á grundvelli þessara laga og tengjast þeirri grein varða auk leyfissviptingar skv. 17. gr. sektum.
Um tilraun til brots eða hlutdeild gilda ákvæði almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
Sömu aðilar geta vísað hinum brotlega úr farartækinu eða húsakynnum láti hann ekki segjast.