141. löggjafarþing — 38. fundur,  20. nóv. 2012.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[18:11]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og þetta er í því frumvarpi sem við fjöllum um varðandi kirkjuskipanina, hún er sett inn í þetta frumvarp óbreytt frá því sem hún er í gildandi stjórnarskrá. Vissulega eru skiptar skoðanir um þetta ákvæði en ég hef ekki heyrt neinn í þessum þingsal mæla því bót að fara að breyta út frá því sem var samþykkt með miklum meiri hluta í þjóðaratkvæðagreiðslunni.