Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 230, 113. löggjafarþing 117. mál: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (breytingar á stofnskrá).
Lög nr. 104 12. desember 1990.

Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á og viðauka við stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.


1. gr.

     Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á og viðauka við stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem samþykktar voru af yfirstjórn sjóðsins 28. júní 1990.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 5. desember 1990.