Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 407, 113. löggjafarþing 126. mál: rannsóknir í þágu atvinnuveganna (Hafrannsóknastofnunin).
Lög nr. 132 31. desember 1990.
Hafrannsóknastofnuninni er heimilt, að fengnu samþykki stjórnar stofnunarinnar og sjávarútvegsráðherra, að eiga aðild að rannsóknar- og þróunarfyrirtækjum, sem eru hlutafélög eða önnur félög með takmarkaðri ábyrgð, er þrói hugmyndir og hagnýti niðurstöður rannsóknar- og þróunarverkefna sem stofnunin vinnur að hverju sinni.
Þingskjal 407, 113. löggjafarþing 126. mál: rannsóknir í þágu atvinnuveganna (Hafrannsóknastofnunin).
Lög nr. 132 31. desember 1990.
Lög um breytingu á lögum nr. 64 21. maí 1965, um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, sbr. lög nr. 72 30. maí 1984.
1. gr.
Við 18. gr. bætist ný málsgrein er orðist svo:Hafrannsóknastofnuninni er heimilt, að fengnu samþykki stjórnar stofnunarinnar og sjávarútvegsráðherra, að eiga aðild að rannsóknar- og þróunarfyrirtækjum, sem eru hlutafélög eða önnur félög með takmarkaðri ábyrgð, er þrói hugmyndir og hagnýti niðurstöður rannsóknar- og þróunarverkefna sem stofnunin vinnur að hverju sinni.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 19. desember 1990.