Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 133, 119. löggjafarþing 3. mál: verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf (innflutningur áfengis).
Lög nr. 95 28. júní 1995.
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal starfa í tveimur deildum er séu aðgreindar rekstrarlega og fjárhagslega. Skal önnur deildin hafa með höndum innflutning og heildsölu áfengis en hin skal annast smásölu áfengis. Fjármálaráðherra skal skipa Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins stjórn og setja með reglugerð nánari ákvæði um skipulag hennar.
Leggja skal hald á vörur þær sem lög þessi taka til og inn eru fluttar eða framleiddar í heimildarleysi. Innfluttar vörur skulu afhentar Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins til ráðstöfunar.
Þingskjal 133, 119. löggjafarþing 3. mál: verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf (innflutningur áfengis).
Lög nr. 95 28. júní 1995.
Lög um breyting á lögum nr. 63/1969, um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- 2. mgr. orðast svo:
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- 2. mgr. orðast svo:
- 3. mgr. orðast svo:
- 4. mgr. orðast svo:
- Við greinina bætist ný málsgrein sem orðast svo:
3. gr.
Á eftir 1. málsl. 3. gr. laganna kemur nýr málsliður svohljóðandi: Verð í smásöluverslunum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á hverri vöru fyrir sig skal vera það sama hvar sem er á landinu.4. gr.
Við 4. gr. laganna bætist ný málsgrein, 2. mgr., svohljóðandi:Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skal starfa í tveimur deildum er séu aðgreindar rekstrarlega og fjárhagslega. Skal önnur deildin hafa með höndum innflutning og heildsölu áfengis en hin skal annast smásölu áfengis. Fjármálaráðherra skal skipa Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins stjórn og setja með reglugerð nánari ákvæði um skipulag hennar.
5. gr.
1. málsl. 5. gr. laganna orðast svo: Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins selur áfengi innan lands, sbr. 11. gr. áfengislaga.6. gr.
7. gr. laganna fellur brott.7. gr.
8. gr. laganna orðast svo:Leggja skal hald á vörur þær sem lög þessi taka til og inn eru fluttar eða framleiddar í heimildarleysi. Innfluttar vörur skulu afhentar Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins til ráðstöfunar.
8. gr.
Heiti laganna verður: Lög um verslun með áfengi og tóbak.9. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. desember 1995.Samþykkt á Alþingi 15. júní 1995.