Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1021, 120. löggjafarþing 385. mál: varnir gegn mengun sjávar.
Lög nr. 61 3. júní 1996.

Lög um breyting á lögum nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, með síðari breytingum.


1. gr.

     Við 2. gr. laganna bætist ný málsgrein er verður 2. mgr. og orðast svo:
     Lögin gilda einnig um starfsemi íslenskra skipa utan íslenskrar efnahagslögsögu eftir því sem Ísland hefur skuldbundið sig til í alþjóðasamningum.

2. gr.

     Í stað orðanna „Siglingamálastofnunar ríkisins“ í 3. mgr. 10. gr., 1. mgr. 14. gr., 22. gr. og 24. gr. laganna kemur: Hollustuverndar ríkisins.

3. gr.

     13. gr. laganna orðast svo:
     Allt úrkast efna og hluta í hafið er óheimilt, sbr. þó 2. mgr. þessarar greinar.
     Hollustuvernd ríkisins getur heimilað að eftirtöldum efnum og hlutum sé varpað í hafið:
  1. dýpkunarefnum;
  2. náttúrulegum, óvirkum efnum, þ.e. föstum jarðefnum sem ekki hafa hlotið efnafræðilega vinnslu og samsett eru úr efnum sem ólíklegt er að losni út í hafsvæðið;
  3. fiskúrgangi frá fiskverkunarstöðvum.

     Við veitingu leyfis skv. 2. mgr. skal taka mið af eðli efnanna og hlutanna, magni þeirra og aðstöðu á losunarstað.
     Ráðherra setur í reglugerð ákvæði um úrkast dýpkunarefna að fengnum tillögum Hollustuverndar ríkisins og Siglingastofnunar Íslands. Þar skal sérstaklega kveðið á um magn þeirra mengunarefna sem vísað er til í fylgiskjali 2.
     Kostnaður við eftirlit með úrkasti í hafið greiðist af leyfishafa.

4. gr.

     17. gr. laganna orðast svo:
     Nú er sýnt að mengunarvaldi takist ekki að koma í veg fyrir fyrirsjáanlegan skaða af völdum mengunarinnar og skulu þá hafnaryfirvöld tafarlaust hefja aðgerðir til að koma í veg fyrir eða draga úr mengun á viðkomandi hafnarsvæði og Hollustuvernd ríkisins, í samvinnu við Landhelgisgæslu Íslands og Siglingastofnun Íslands, utan hafnarsvæða.

5. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ kemur: Hollustuvernd ríkisins.
  2. Við greinina bætast tvær nýjar málsgreinar er orðast svo:
  3.      Ráðherra er heimilt að fenginni tillögu Hollustuverndar ríkisins og að höfðu samráði við sveitarstjórnir að setja nánari reglur um framkvæmd þessara mála, svo sem um skiptingu landsins í svæði, skipan í svæðisráð, notkun mengunarvarnabúnaðar og stjórn á mengunarstað.
         Ráðherra getur að fenginni tillögu Hollustuverndar ríkisins og að höfðu samráði við sveitarstjórnir sett samræmda gjaldskrá vegna notkunar mengunarvarnabúnaðar.


6. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „Siglingamálastofnun ríkisins“ kemur: Hollustuvernd ríkisins.
  2. Í stað orðanna „Hollustuverndar ríkisins“ kemur: Siglingastofnunar Íslands.


7. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:
  1. 2. mgr. fellur brott.
  2. Orðin „að höfðu samráði við heilbrigðismálaráðherra og menntamálaráðherra“ í 3. mgr. falla brott.
  3. Orðin „að höfðu samráði við heilbrigðismálaráðherra“ í 4. mgr. falla brott.


8. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.
     Þegar lög þessi hafa hlotið staðfestingu skal fella meginmál þeirra inn í lög nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, ásamt síðari breytingum, og gefa þau út svo breytt.

Samþykkt á Alþingi 21. maí 1996.