Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 962, 123. löggjafarþing 346. mál: útflutningur hrossa (útflutningsgjald).
Lög nr. 15 16. mars 1999.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þeim sem greitt hafa útflutningsgjald skv.
5. gr. frá gildistöku laga nr. 84/1997, um búnaðargjald, þar til lög þessi öðlast gildi skal endurgreiddur sá hluti gjaldsins sem runnið hefur til Búnaðarmálasjóðs.
Þingskjal 962, 123. löggjafarþing 346. mál: útflutningur hrossa (útflutningsgjald).
Lög nr. 15 16. mars 1999.
Lög um breytingu á lögum um útflutning hrossa, nr. 161/1994, sbr. lög nr. 73/1996.
1. gr.
2. og 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna orðast svo: Gjaldið skal vera 6.800 kr. og greiðist í sérstakan útflutningssjóð í vörslu landbúnaðarráðuneytisins. Er því ætlað að standa undir kostnaði við skoðun á útflutningshrossum og útgáfu upprunavottorðs en 5% gjaldsins skal greiða í stofnverndarsjóð sem starfar skv. 15. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 3. mars 1999.