Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 539, 125. löggjafarþing 4. mál: skattfrelsi norrænna verðlauna.
Lög nr. 126 31. desember 1999.
Þingskjal 539, 125. löggjafarþing 4. mál: skattfrelsi norrænna verðlauna.
Lög nr. 126 31. desember 1999.
Lög um skattfrelsi norrænna verðlauna.
1. gr.
Eftirtalin norræn verðlaun skulu undanþegin tekjuskatti og útsvari:- Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.
- Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.
- Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs.
- Norrænu leikskáldaverðlaunin.
- Nóbelsverðlaunin.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts og útsvars á árinu 2000 vegna tekna á árinu 1999. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 13/1976, um skattfrelsi bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, með síðari breytingum.Samþykkt á Alþingi 21. desember 1999.