Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1089, 125. löggjafarþing 223. mál: fjáröflun til vegagerðar (afsláttur af þungaskatti).
Lög nr. 31 5. maí 2000.

Lög um breyting á lögum nr. 3/1987, um fjáröflun til vegagerðar, með síðari breytingum.


1. gr.

     Á undan orðinu „námubifreiðar“ í 3. mgr. 1. gr. laganna kemur: belta- og.

2. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
  1. 3. og 4. málsl. 1. mgr. B-liðar falla brott.
  2. 2. mgr. B-liðar verður svohljóðandi:
  3.      Kílómetragjald ökutækja skv. 1. mgr. þessa stafliðar skal vera sem hér segir:
    Leyfð heildar- Kílómetragjald, Leyfð heildar- Kílómetragjald,
    þyngd ökutækis, kg kr. þyngd ökutækis, kg kr.
    4.000–4.999 7,11 18.000–18.999 17,09
    5.000–5.999 7,56 19.000–19.999 18,40
    6.000–6.999 8,17 20.000–20.999 19,38
    7.000–7.999 8,58 21.000–21.999 20,50
    8.000–8.999 8,96 22.000–22.999 21,79
    9.000–9.999 9,36 23.000–23.999 22,83
    10.000–10.999 9,93 24.000–24.999 23,86
    11.000–11.999 10,30 25.000–25.999 25,02
    12.000–12.999 11,20 26.000–26.999 26,13
    13.000–13.999 12,00 27.000–27.999 27,30
    14.000–14.999 12,93 28.000–28.999 28,46
    15.000–15.999 13,92 29.000–29.999 29,62
    16.000–16.999 15,03 30.000–30.999 30,78
    17.000–17.999 16,12 31.000 og yfir 31,94

  4. 3. mgr. B-liðar fellur brott.
  5. 4. mgr. B-liðar fellur brott.


3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „en eindagi síðasti dagur sama mánaðar“ í 2. málsl. 1. mgr. A-liðar kemur nýr málsliður er orðast svo: Eindagar skattsins eru 15. febrúar og 15. ágúst ár hvert.
  2. 5. málsl. 1. mgr. A-liðar fellur brott.
  3. Orðin „í a.m.k. 15 daga samfellt“ í 1. málsl. 3. mgr. A-liðar falla brott.
  4. Orðin „í jafnlangan tíma“ í 2. málsl. 3. mgr. A-liðar falla brott.
  5. Í stað orðanna „er ríkisskattstjóra heimilt að“ í 3. málsl. 3. mgr. A-liðar kemur: skal ríkisskattstjóri.
  6. Í stað orðanna „en eindagi síðasti dagur sama mánaðar“ í 1. málsl. 1. mgr. B-liðar kemur nýr málsliður er orðast svo: Eindagar skattsins eru 15. mars, 15. júlí og 15. nóvember ár hvert.
  7. 3. málsl. 1. mgr. B-liðar fellur brott.
  8. 3. mgr. B-liðar fellur brott.


4. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „gjaldfallinn er“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: fallinn er í eindaga.
  2. Orðin „og fast gjald þungaskatts skv. B-lið 4. gr. greitt til þess dags er eigendaskipti eru skráð í ökutækjaskrá“ í 2. málsl. 2. mgr. falla brott.


5. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.
     Hinn 11. júní 2000 skal lagt 33.333 kr. fast árgjald þungaskatts á bifreiðar sem eru að leyfðri heildarþyngd 14.000 kg eða meira, sbr. 3. málsl. 1. mgr. B-liðar 4. gr. laganna eins og þau eru fyrir gildistöku laga þessara.
     Ný gjaldskrá B-liðar 4. gr. tekur gildi 11. júní 2000. Nýja gjaldið fyrir hvern ekinn kílómetra tekur gildi strax að loknu öðru álestrartímabili sem er frá 20. maí til 10. júní 2000, sbr. 2. mgr. B-liðar 7. gr. Sé ekki komið með ökutæki til álestrar á réttum tíma skal reikna út meðaltal ekinna kílómetra á dag á tímabilinu milli álestra. Þá skal hið nýja gjald innheimt eftir meðaltalsakstri eftir lok fyrrgreinds álestrartímabils.
     Þeir sem sótt hafa um heimild til ríkisskattstjóra til að greiða gjald fyrir gjaldárið 2000 er tekur mið af 95.000 km akstri í stað gjalds fyrir hvern ekinn kílómetra auk 100.000 kr. fasts árgjalds, sbr. 4. mgr. B-liðar 4. gr., fyrir gildistöku laga þessara, skulu halda rétti sínum til greiðslu áðurgreinds gjalds.

Samþykkt á Alþingi 27. apríl 2000.