Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1498, 126. löggjafarþing 589. mál: Suðurlandsskógar (starfssvæði).
Lög nr. 89 31. maí 2001.
Tilgangur laga þessara er að stuðla að ræktun fjölnytjaskóga og skjólbelta í Gullbringusýslu, Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og Austur- Skaftafellssýslu og umhirðu þess skóglendis sem þar er fyrir og treysta með því byggð og fjárfesta í nýrri auðlind sem efla mun atvinnulíf í framtíðinni.
Þingskjal 1498, 126. löggjafarþing 589. mál: Suðurlandsskógar (starfssvæði).
Lög nr. 89 31. maí 2001.
Lög um breytingu á lögum nr. 93/1997, um Suðurlandsskóga.
1. gr.
1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:Tilgangur laga þessara er að stuðla að ræktun fjölnytjaskóga og skjólbelta í Gullbringusýslu, Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og Austur- Skaftafellssýslu og umhirðu þess skóglendis sem þar er fyrir og treysta með því byggð og fjárfesta í nýrri auðlind sem efla mun atvinnulíf í framtíðinni.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 20. maí 2001.