Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 793, 127. löggjafarþing 39. mál: áhugamannahnefaleikar.
Lög nr. 9 18. febrúar 2002.

Lög um áhugamannahnefaleika.


1. gr.

     Heimil er keppni og sýning á áhugamannahnefaleikum. Enn fremur er heimilt að kenna áhugamannahnefaleika.

2. gr.

     Heimil er sala og notkun hnefaleikahanska og annarra tækja sem ætluð eru til þjálfunar áhugamannahnefaleika.

3. gr.

     Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands setur reglur um áhugamannahnefaleika. Við samningu reglnanna skal leitast við að taka mið af ýtrustu öryggisreglum í nágrannalöndum.

4. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 11. febrúar 2002.