Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 782, 144. löggjafarþing 404. mál: uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka (gildistími laganna).
Lög nr. 131 22. desember 2014.
Vegna fyrirhugaðrar stofnunar og reksturs atvinnustarfsemi á iðnaðarsvæði í landi Bakka í Norðurþingi, þar sem gert er ráð fyrir verulegri fjárfestingu sem hafi jákvæð þjóðhagsleg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif á Húsavík og nágrenni þess, og í þeim tilgangi að byggja upp nauðsynlega innviði vegna iðnaðarsvæðisins, er:
Þingskjal 782, 144. löggjafarþing 404. mál: uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka (gildistími laganna).
Lög nr. 131 22. desember 2014.
Lög um breytingu á lögum nr. 41/2013, um heimild til handa ráðherra, f.h. ríkissjóðs, til að fjármagna uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka í Norðurþingi.
1. gr.
1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:Vegna fyrirhugaðrar stofnunar og reksturs atvinnustarfsemi á iðnaðarsvæði í landi Bakka í Norðurþingi, þar sem gert er ráð fyrir verulegri fjárfestingu sem hafi jákvæð þjóðhagsleg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif á Húsavík og nágrenni þess, og í þeim tilgangi að byggja upp nauðsynlega innviði vegna iðnaðarsvæðisins, er:
- ráðherra, f.h. ríkissjóðs, heimilt, að fengnum heimildum í fjárlögum, að semja við Vegagerðina um gerð vegtengingar milli Húsavíkurhafnar og iðnaðarsvæðisins á Bakka sem kostar allt að 1.800 millj. kr., miðað við verðlag í lok árs 2012,
- ráðherra sem fer með lánsfjármál ríkissjóðs heimilt, f.h. ríkissjóðs, að fengnum heimildum í fjárlögum, að semja við hafnarsjóð Húsavíkurhafnar um víkjandi lán til hafnarframkvæmda fyrir allt að 819 millj. kr., miðað við verðlag í lok árs 2012.
2. gr.
Í stað ártalsins „2015“ í 3. gr. laganna kemur: 2016.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 16. desember 2014.