Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1867, 149. löggjafarþing 954. mál: félagsleg aðstoð og almannatryggingar (framfærsluuppbót og meðferð atvinnutekna).
Lög nr. 97 1. júlí 2019.
I. KAFLI
Breyting á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, með síðari breytingum.
II. KAFLI
Breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum.
Þrátt fyrir ákvæði 5. mgr. er við útreikning á greiðslum skv. 17.–19. gr. og 21.–23. gr. laga þessara, sbr. einnig 13. gr. laga um félagslega aðstoð, heimilt að telja atvinnutekjur til tekna bótaþega einungis í þeim mánuði þegar þeirra er aflað. Skal Tryggingastofnun ríkisins við endurreikning bótafjárhæða, sbr. 7. mgr., gera samanburð á útreikningi heildargreiðslna hvers mánaðar, annars vegar miðað við 1/ 12 af atvinnutekjum ársins og hins vegar miðað við atvinnutekjur í þeim mánuðum sem þeirra er aflað. Beita skal þeirri reglu sem leiðir til hærri greiðslna.
Þingskjal 1867, 149. löggjafarþing 954. mál: félagsleg aðstoð og almannatryggingar (framfærsluuppbót og meðferð atvinnutekna).
Lög nr. 97 1. júlí 2019.
Lög um breytingu á lögum um félagslega aðstoð og lögum um almannatryggingar (framfærsluuppbót og meðferð atvinnutekna).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- Í stað fjárhæðarinnar „280.000 kr.“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 310.800 kr.
- Í stað fjárhæðarinnar „227.883 kr.“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: 247.183 kr.
- Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Eingreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins og fjárhagsaðstoð sveitarfélaga skal þó ekki telja til tekna lífeyrisþega.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
2. gr.
Á eftir 11. mgr. 16. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Þrátt fyrir ákvæði 5. mgr. er við útreikning á greiðslum skv. 17.–19. gr. og 21.–23. gr. laga þessara, sbr. einnig 13. gr. laga um félagslega aðstoð, heimilt að telja atvinnutekjur til tekna bótaþega einungis í þeim mánuði þegar þeirra er aflað. Skal Tryggingastofnun ríkisins við endurreikning bótafjárhæða, sbr. 7. mgr., gera samanburð á útreikningi heildargreiðslna hvers mánaðar, annars vegar miðað við 1/ 12 af atvinnutekjum ársins og hins vegar miðað við atvinnutekjur í þeim mánuðum sem þeirra er aflað. Beita skal þeirri reglu sem leiðir til hærri greiðslna.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi og koma til framkvæmda sem hér segir:- A–c-liður 1. gr. öðlast þegar gildi.
- D-liður 1. gr. öðlast gildi 1. janúar 2019.
- 2. gr. öðlast gildi 1. janúar 2019 en kemur til framkvæmda við álagningu opinberra gjalda á árinu 2020 vegna tekna ársins 2019.
Samþykkt á Alþingi 18. júní 2019.