Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1697, 150. löggjafarþing 447. mál: ársreikningar (skil ársreikninga).
Lög nr. 68 24. júní 2020.

Lög um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (skil ársreikninga).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 97. gr. laganna:
  1. Í stað tilvísunarinnar „2. gr. laga um endurskoðendur, nr. 79/2008“ í 1. mgr. kemur: 3. gr. laga um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019.
  2. Í stað tilvísunarinnar „1. og 2. mgr. 19. gr. laga nr. 79/2008, um endurskoðendur“ í 2. mgr. kemur: V. kafla laga um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019.


2. gr.

     Í stað tilvísunarinnar „ lögum um endurskoðendur, nr. 79/2008“ í 1. málsl. 2. mgr. 104. gr. laganna kemur: lögum um endurskoðendur og endurskoðun, nr. 94/2019.

3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 121. gr. laganna:
  1. Í stað orðsins „átta“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: sex.
  2. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ef stjórn félags eða framkvæmdastjóri þess sækir þing getur héraðsdómari orðið við beiðni félagsins um að fresta meðferð kröfunnar í allt að tvo mánuði.
  3. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
  4.      Berist beiðni þar að lútandi er ársreikningaskrá heimilt að fella niður allar álagðar stjórnvaldssektir skv. 1.–6. mgr. 120. gr. í kjölfar móttöku:
    1. hlutafélagaskrár á skriflegri yfirlýsingu hluthafa í einkahlutafélagi um að allar gjaldfallnar og ógjaldfallnar skuldir félags hafi verið greiddar og að félaginu verði slitið skv. 83. gr. a laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994,
    2. tilkynningar skilanefndar til hlutafélagaskrár um slit einkahlutafélags skv. 2. mgr. 91. gr. laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994,
    3. yfirlýsingar um afmáningu útibús erlends einkahlutafélags úr hlutafélagaskrá í samræmi við XVI. kafla laga um einkahlutafélög, nr. 138/1994,
    4. tilkynningar skilanefndar til hlutafélagaskrár um slit hlutafélags eða samlagshlutafélags skv. 2. mgr. 116. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995,
    5. yfirlýsingar um afmáningu útibús erlends hlutafélags úr hlutafélagaskrá í samræmi við XVI. kafla laga um hlutafélög, nr. 2/1995,
    6. firmaskrár á tilkynningu um slit sameignarfélags skv. 6. mgr. 42. gr. laga um sameignarfélög, nr. 50/2007,
    7. sjálfseignarstofnanaskrár á yfirlýsingu um slit sjálfseignarstofnunar í atvinnurekstri, sbr. 36. gr. laga um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, nr. 33/1999,
    8. samvinnufélagaskrár á yfirlýsingu um slit samvinnufélags í samræmi við 2. mgr. 67. gr. laga um samvinnufélög, nr. 22/1991, eða
    9. fyrirtækjaskrár á yfirlýsingu félagsmanna um slit samlagsfélags.

         Heimild ársreikningaskrár til að fella niður álagðar stjórnvaldssektir er háð því skilyrði að ársreikningi félags hafi verið skilað til ársreikningaskrár í samræmi við ákvæði laga þessara.


4. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 12. júní 2020.