Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 890, 153. löggjafarþing 442. mál: tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist (framlenging gildistíma).
Lög nr. 118 28. desember 2022.
Þrátt fyrir skilyrði 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. er þjónustuaðila heimilt að sækja um endurgreiðslu hluta kostnaðar sem fellur til við hljóðritun hér á landi. Í umsókn skal tilgreina áætlaðan útgáfudag og skal hann vera innan hæfilegra marka frá þeim tíma sem sótt er um endurgreiðslu. Nefnd skv. 2. mgr. 4. gr. metur í hverju tilviki fyrir sig hvað teljast hæfileg tímamörk í þessu sambandi.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um hvaða kostnaður telst endurgreiðsluhæfur.
Þingskjal 890, 153. löggjafarþing 442. mál: tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist (framlenging gildistíma).
Lög nr. 118 28. desember 2022.
Lög um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar á tónlist, nr. 110/2016 (framlenging gildistíma o.fl.).
1. gr.
Á eftir orðunum „útgefendum hljóðrita“ í 1. gr. laganna kemur: og eftir atvikum þjónustuaðila.2. gr.
Við 3. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Þjónustuaðili: Sá aðili sem veitir útgefanda hljóðrita þjónustu og sækir um endurgreiðslu fyrir hans hönd.3. gr.
Við 5. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Þrátt fyrir skilyrði 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. er þjónustuaðila heimilt að sækja um endurgreiðslu hluta kostnaðar sem fellur til við hljóðritun hér á landi. Í umsókn skal tilgreina áætlaðan útgáfudag og skal hann vera innan hæfilegra marka frá þeim tíma sem sótt er um endurgreiðslu. Nefnd skv. 2. mgr. 4. gr. metur í hverju tilviki fyrir sig hvað teljast hæfileg tímamörk í þessu sambandi.
4. gr.
Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um hvaða kostnaður telst endurgreiðsluhæfur.
5. gr.
Í stað ártalsins „2022“ í 2. málsl. 1. mgr. og 3. mgr. 11. gr. laganna kemur: 2027.6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 16. desember 2022.