Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 2142, 153. löggjafarþing 939. mál: tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna (geymsla og nýting fósturvísa og kynfrumna).
Lög nr. 69 22. júní 2023.
Sá sem leggur kynfrumur til getur veitt skriflegt og vottað samþykki fyrir notkun eftirlifandi maka á þeim við tæknifrjóvgun, enda geti eftirlifandi maki notað kynfrumurnar í eigin líkama. Sama á við um samþykki fyrir notkun fyrrverandi maka eftir skilnað eða sambúðarslit, enda geti hann notað kynfrumurnar í eigin líkama og skriflegt og vottað samþykki liggi fyrir samhliða umsókn um tæknifrjóvgun.
Um geymslu og notkun fósturvísa og kynfrumna, sem sett voru í geymslu fyrir gildistöku þessara laga, fer samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Þingskjal 2142, 153. löggjafarþing 939. mál: tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna (geymsla og nýting fósturvísa og kynfrumna).
Lög nr. 69 22. júní 2023.
Lög um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996 (geymsla og nýting fósturvísa og kynfrumna).
1. gr.
Við 8. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Sá sem leggur kynfrumur til getur veitt skriflegt og vottað samþykki fyrir notkun eftirlifandi maka á þeim við tæknifrjóvgun, enda geti eftirlifandi maki notað kynfrumurnar í eigin líkama. Sama á við um samþykki fyrir notkun fyrrverandi maka eftir skilnað eða sambúðarslit, enda geti hann notað kynfrumurnar í eigin líkama og skriflegt og vottað samþykki liggi fyrir samhliða umsókn um tæknifrjóvgun.
2. gr.
Við 3. mgr. 9. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Einstaklingur sem samþykkt hefur geymslu fósturvísa skv. 2. mgr. getur veitt skriflegt og vottað samþykki fyrir notkun eftirlifandi maka á þeim við tæknifrjóvgun, enda geti eftirlifandi maki notað fósturvísi í eigin líkama. Sama á við um samþykki fyrir notkun fyrrverandi maka eftir skilnað eða sambúðarslit, enda geti hann notað fósturvísana í eigin líkama og skriflegt og vottað samþykki liggi fyrir samhliða umsókn um tæknifrjóvgun.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Nú er hámarksgeymslutími ekki liðinn en sá sem samþykkti geymslu kynfrumna eða fósturvísa dregur samþykki sitt til baka og skal þá eyða kynfrumum eða fósturvísum.
- Við 3. mgr. bætist: eða fyrir liggi skriflegt og vottað samþykki hins látna um notkun eftirlifandi maka á þeim við tæknifrjóvgun skv. 1. málsl. 3. mgr. 8. gr.
- 4. mgr. orðast svo:
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2024.Um geymslu og notkun fósturvísa og kynfrumna, sem sett voru í geymslu fyrir gildistöku þessara laga, fer samkvæmt ákvæðum laga þessara.
5. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á öðrum lögum:- Barnalög, nr. 76/2003:
- Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 1. gr. a laganna:
- Í stað vísunarinnar „2.–4. mgr.“ 2. málsl. kemur: 2.–5. mgr.
- Í stað vísunarinnar „4. mgr.“ í 3. málsl. kemur: 5. mgr.
- Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Við 4. mgr. bætist: nema ákvæði 4. mgr. eigi við.
- Í stað vísunarinnar „5. mgr.“ í 6. mgr. kemur: 6. mgr.
- Á eftir vísuninni „3. mgr.“ í 7. mgr. kemur: eða eftirlifandi eða fyrrverandi eiginkonu eða sambúðarkonu, sbr. 4. mgr.
- Í stað vísunarinnar „7. mgr.“ í 8. mgr. kemur: 8. mgr.
- Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. a laganna:
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Við 4. mgr. bætist: nema ákvæði 4. mgr. eigi við.
- Í stað vísunarinnar „5. og 6. mgr.“ í 6. mgr. kemur: 6. og 7. mgr.
- Í stað vísunarinnar „7. og 8. mgr.“ í 7. mgr. kemur: 8. og 9. mgr.
- Í stað vísunarinnar „7. mgr.“ í 7. mgr. kemur: 8. mgr.
- Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
- 1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Læknir eða ljósmóðir sem tekur á móti barni skal spyrja móður sem elur barnið um faðerni þess, m.a. hvort um tæknifrjóvgun hafi verið að ræða eða ekki og skrá yfirlýsingu hennar um það.
- Í stað vísunarinnar „2. mgr.“ í 4. málsl. 2. mgr. kemur: 2. eða 4. mgr.
- Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Í stað vísunarinnar „3. mgr.“ í 4. mgr. kemur: 4. mgr.
- Í stað vísunarinnar „2.–4. mgr.“ í 5. mgr. kemur: 2.–5. mgr.
- Á eftir orðunum „þ.m.t. um“ í 6. mgr. kemur: leiðréttingu á skráningu.
- Við 23. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Erfðalög, nr. 8/1962: Við 21. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sama gildir um barn sem getið er eftir að arfleifandi fellur frá á grundvelli samþykkis skv. 4. mgr. 6. gr. og 4. mgr. 6. gr. a barnalaga, nr. 76/2003, ef það fæðist lifandi.
Samþykkt á Alþingi 9. júní 2023.