24. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 9. nóvember 2021 kl. 10:10


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 10:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 10:10
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 13:30
Inga Sæland (IngS), kl. 10:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 10:10
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:10
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:10
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:10
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 10:10

Diljá Mist Einarsdóttir og Inga Sæland tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. 1. mgr. 17. gr. þingskapa, sbr. einnig 1. mgr. 48. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Þórunn Sveinbjarnardóttir vék af fundi kl. 10:40-12:05.
Diljá Mist Einarsdóttir vék af fjarfundi kl. 11:25 en mætti síðan á fund kl. 13:50.
Líneik Anna Sævarsdóttir vék af fundi kl. 12:05-13:30.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:10
Fundargerð 23. fundar var samþykkt.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 10:10
Nefndin ræddi málsmeðferð og verkefni nefndarinnar.

Nefndin fékk á sinn fund Hafstein Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, til að veita nefndinni ráðgjöf um málsmeðferð nefndarinnar.

Hlé var gert á fundi kl. 13:00-13:30.

Nefndin fékk á sinn fund Stefán Inga Valdimarsson, stærðfræðing og ráðgjafa landskjörstjórnar, til að fjalla um útreikninga við úthlutun þingsæta og næmisgreiningu.

3) Störf nefndarinnar Kl. 14:20
Nefndin ræddi fyrirkomulag næstu funda.

Nefndin samþykkti að fara í Borgarnes til að fara yfir flokkun kjörgagna í Norðvesturkjördæmi.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:00