20. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 3. nóvember 2021 kl. 10:07


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 10:07
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:07
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 10:07
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 11:05
Inga Sæland (IngS), kl. 13:00
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 10:07
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:07
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:07
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:07
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 10:07

Svandís Svavarsdóttir vék af fundi kl. 14:55. Jóhann Friðrik Friðriksson vék af fundi kl. 15:10.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Steindór Dan Jensen
Þórhallur Vilhjálmsson

Gestur tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Samtal við gest fundarins var hljóðritað og tekið upp í mynd. Hljóðritunin verður skrifuð upp í vinnuskjal til að tryggja aðgang þingmanna að öllum gögnum málsins svo þeir geti, hver fyrir sig, tekið ákvörðun þegar Alþingi fjallar um gildi kosninganna.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:35
Fundargerð 19. fundar var samþykkt.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 10:07
Nefndin fékk á sinn fund Sigurð Hrein Sigurðsson.

Nefndin ræddi málið.

Kl. 10:36
Nefndin fjallaði um verkefni nefndarinnar og málsmeðferð.

Nefndin fór yfir ágreiningsseðla.

Hlé var gert á fundi kl. 12:20-13:00.

Nefndin ræddi drög að greinargerð nefndarinnar.

3) Störf nefndarinnar Kl. 14:55
Nefndin ræddi fyrirkomulag næstu funda.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:18