23. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 8. desember 2022 kl. 09:10


Mætt:

Bryndís Haraldsdóttir (BHar) formaður, kl. 09:10
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 1. varaformaður, kl. 09:10
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF) 2. varaformaður, kl. 09:10
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:10
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:10
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:10
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 09:10

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir boðaði forföll. Bergþór Ólason og Birgir Þórarinsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Inga Valgerður Stefánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) 278. mál - meðferð einkamála o.fl. Kl. 09:15
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti með breytingartillögu standa Bryndís Haraldsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Helga Vala Helgadóttir, Jódís Skúladóttir og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Sigmar Guðmundsson áheyrnarfulltrúi er samþykkur álitinu.

3) Heiðurslaun listamanna Kl. 09:27
Nefndin fjallaði um málið.

Samþykkt var að birta á vef Alþingis tilkynningu um að nefndin hafi til umfjöllunar veitingu heiðurslauna listamanna og benda á að unnt er að koma að tilnefningum til nefndarinnar á sérstakt netfang, fram til hádegis sunnudaginn 11. desember 2022.

4) Önnur mál Kl. 10:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15