1. fundur
atvinnuveganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 20. september 2022 kl. 09:10


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:10
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:10
Hildur Sverrisdóttir (HildS) 2. varaformaður, kl. 09:44
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:10
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:10
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:10
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:10

Haraldur Benediktsson boðaði forföll.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Áheyrnaraðild Kl. 09:10
Formaður upplýsti nefndina um að þingflokkur Samfylkingarinnar hefði tilnefnt Oddnýju G. Harðardóttur sem áheyrnarfulltrúa við nefndina, sbr. 14. gr. þingskapa, í stað Þórunnar Sveinbjarnardóttur.

2) Kynning á skýrslu matvælaráðuneytisins - Lagaumgjörð og stjórnsýsla Kl. 09:10
Nefndin fékk á sinn fund Benedikt Árnason og Elísabetu Önnu Jónsdóttur frá matvælaráðuneyti.

3) Önnur mál Kl. 10:12
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:18