1. fundur
atvinnuveganefndar á 142. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8–10, miðvikudaginn 12. júní 2013 kl. 08:30


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 08:30
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 08:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 08:30
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 08:30
Haraldur Einarsson (HE), kl. 08:30
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ), kl. 08:30
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 08:30
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 08:30
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl), kl. 08:30
Kristján L. Möller (KLM), kl. 08:30
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 08:30
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR), kl. 08:30
Róbert Marshall (RM), kl. 08:58
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:30
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 08:30

BÁ boðaði forföll og ÞórE var fjarverandi.

Nefndarritari: Þórunn Pálína Jónsdóttir

Um var að ræða sameiginlegan fund umhverfis- og samgöngunefndar og atvinnuveganefndar opinn fjölmiðlum. HöskÞ formaður umhverfis- og samgöngunefndar stýrði fundinum.

Bókað:

1) Staða Hellisheiðarvirkjunar. Kl. 08:43
Nefndirnar fengu á sinn fund Sigmund Einarsson og Jón Gunnar Ottósson frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Ólaf G. Flóvenz frá ÍSOR, Stefán Arnórsson frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Sveinbjörn Björnsson og Skúla Thoroddsen frá Orkustofnun, Júlíus Jónsson frá HS Orku, Óla Grétar Blöndal Sveinsson frá Landsvirkjun, Bjarna Bjarnason, Gunnar Gunnarsson og Hildi G. Thoroddsen frá Orkuveitu Reykjavíkur, Guðlaug Sverrisson, Guðmund Þóroddsson og Grím Björnsson. Gestirnir ræddu málið og svöruðu spurningum nefndamanna. Óskað var eftir að haldinn yrði framhaldsfundur um málið.

Fundi slitið kl. 12:00