60. fundur
atvinnuveganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 8. maí 2014 kl. 09:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00

Lilja Rafney Magnúsdóttir og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.
Björt Ólafsdóttir vék af fundi kl. 10.30.
Þórunn vék af fundi kl. 11.00.
Páll Jóhann Pálsson vék af fundi kl. 11.50.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerðir 55. og 56. fundar voru samþykktar.

2) Kynning frá KPMG Kl. 09:00
Alexander Eðvardsson frá KPMG var með kynningu fyrir nefndinni.

3) 319. mál - fiskeldi Kl. 10:30
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Ástu Einarsdóttur og Valdimar Inga Gunnarsson fyrir hönd atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

4) Önnur mál. Kl. 12:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:00