19. fundur
atvinnuveganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 16. febrúar 2016 kl. 09:10


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 10:00
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) 1. varaformaður, kl. 09:10
Haraldur Benediktsson (HarB) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:10
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:20
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:10
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 09:10
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:10
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:10

LRM vék af fundi kl. 10.50.

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla skv. 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006. Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um skýrslu um ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla og áhrif þess á byggðafestu. Á fund nefndarinnar komu Jóhann Guðmundsson og Hinrik Greipsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

2) 372. mál - stefna um nýfjárfestingar Kl. 10:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Þórð H. Hilmarsson frá Íslandsstofu og Margréti Berg Sverrisdóttur frá Viðskiptaráði Íslands.

3) Önnur mál Kl. 11:05
Þorsteinn Sæmundsson var valinn framsögumaður í máli 457, frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:05