52. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 26. apríl 2016
kl. 13:00
Mættir:
Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 13:00Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 13:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 13:00
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 13:00
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 13:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 13:00
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 13:00
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 13:00
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 13:00
Ásta Guðrún Helgadóttir var fjarverandi.
Brynjar Níelsson vék af fundi kl. 13:30.
Líneik Anna Sævarsdóttir vék af fundi kl. 14:25.
Vilhjálmur Bjarnason vék af fundi kl. 14:40.
Nefndarritari: Gautur Sturluson
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:50
Þessum dagskrárlið var frestað.
2) 589. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 13:10
Á fund nefndarinnar mættu Harpa Jónsdóttir og Áslaug Jósepsdóttir frá Seðlabanka Íslands og kynntu nefndinni umsögn bankans um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 396. mál - vátryggingastarfsemi Kl. 13:30
Á fund nefndarinnar mætti Margrét Berg Sverrisdóttir frá Viðskiptaráði Íslands og fór yfir umsögn Viðskiptaráðs um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
4) 456. mál - ársreikningar Kl. 14:10
Á fundinn mættu Harpa Theódórsdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og fóru yfir minnisblað ráðuneytisins þar sem brugðist er við framkomnum athugasemdum auk þess að svara spurningum nefndarmanna um málið.
Nefndin ræddi næstu skref í málinu.
5) Önnur mál Kl. 15:10
Nefndin fór yfir stöðu mála í nefnd og dagskrá næsta fundar. Fleira var ekki gert á fundinum.
Fundi slitið kl. 15:10