15. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 8. febrúar 2018 kl. 09:05


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:05
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:24
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:05
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:22
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:05
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:05
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:13
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:27

Þorsteinn Víglundsson boðaði forföll. Silja Dögg Gunnarsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Gunnlaugur Helgason

Bókað:

1) 2. mál - fjármálastefna 2018--2022 Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar komu Axel Hall og Gunnar Haraldsson frá fjármálaráði. Gestirnir ræddu álitsgerð fjármálaráðs og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) Aðgangur að upplýsingum úr fyrirtækjaskrá Kl. 10:02
Liðnum var frestað.

3) Viðvera endurskoðenda á aðalfundum Kl. 10:03
Liðnum var frestað.

4) 93. mál - afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar og afleiðuviðskiptaskrár Kl. 10:03
Ákveðið var að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður málsins.

Ákveðið var að senda málið til umsagnar með umsagnarfresti til 22. febrúar 2018.

5) Fundargerð Kl. 10:04
Fundargerð 14. fundar var samþykkt með fyrirvara um að ekki yrðu gerðar athugasemdir fyrir lok dags.

6) Önnur mál Kl. 10:04
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:05