17. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 20. febrúar 2018 kl. 09:10


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 10:00
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:50
Silja Dögg Gunnarsdóttir (SilG), kl. 09:10
Una Hildardóttir (UnaH), kl. 09:10

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerðir 15. og 16. fundar voru samþykktar.

2) 2. mál - fjármálastefna 2018--2022 Kl. 09:15
Nefndin afgreiddi umsögn um málið til fjárlaganefndar með samþykki allra viðstaddra.

3) Aðgangur að upplýsingum úr fyrirtækjaskrá Kl. 09:30
Nefndin samþykkti að beina fyrirspurn um málið til Fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra.

4) 93. mál - afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar og afleiðuviðskiptaskrár Kl. 09:50
Nefndin fékk á sinn fund Guðmund Kára Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, sem kynnti frumvarpið og svaraði spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 10:10
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fundi slitið kl. 10:30