17. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 152. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn fimmtudaginn 27. janúar 2022
kl. 09:10
Mætt:
Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 09:10Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:10
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:10
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:10
Eva Sjöfn Helgadóttir (ESH), kl. 09:10
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:10
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:10
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 09:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:10
Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Ívar Már Ottason
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárliðnum var frestað.
2) 232. mál - styrkir til rekstraraðila veitingastaða sem hafa sætt takmörkunum á opnunartíma Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Þorgeir Helgason og Hrafnkel Hring Helgason frá 27 Mathús, f.h. rekstraraðila veitingahúsa sem voru stofnuð árið 2020 og árið 2021 og Guðrúnu Þorleifsdóttur og Gunnlaug Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.
3) 244. mál - evrópskir áhættufjármagnssjóðir og evrópskir félagslegir framtakssjóðir Kl. 10:20
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti og að Guðrún Hafsteinsdóttir verði framsögumaður þess.
4) Önnur mál Kl. 10:25
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:25