47. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 16. mars 2023 kl. 11:05


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 11:05
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) 2. varaformaður, kl. 11:05
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 11:05
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 11:05
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 11:05
Logi Einarsson (LE), kl. 11:05
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 11:05

Diljá Mist Einarsdóttir var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Ágúst Bjarni Garðarsson boðaði forföll.

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 11:05
Frestað.

2) 415. mál - upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar Kl. 11:05
Ákveðið var að boða frekari gesti vegna málsins.

3) 541. mál - Seðlabanki Íslands Kl. 11:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Hermann Sæmundsson og Sigurð Örn Guðleifsson frá Forsætisráðuneyti.

4) 588. mál - fjármögnunarviðskipti með verðbréf Kl. 11:05
Nefndin samþykkti að óska eftir minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneyti þar sem fram kæmi afstaða ráðuneytisins til umsagna sem bárust nefndinni vegna málsins.

5) Önnur mál Kl. 11:36
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:36