29. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 10. desember 2014 kl. 09:37


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:37
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 09:37
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:37
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:43
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:37
Steingrímur J. Sigfússon (SJS), kl. 09:37
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:37
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:37

Árni Páll Árnason var fjarverandi vegna veðurs. Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Benedikt S. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:16
Fundargerð 28. fundar var samþykkt.

2) 356. mál - tekjuskattur o.fl. Kl. 09:37
Nefndin ræddi málið.

3) 17. mál - verslun með áfengi og tóbak o.fl. Kl. 10:05
Fyrir fundinn voru lögð drög að umsögn til allsherjar- og menntamálanefndar um málið. Ákveðið var að meiri- og minnihluti nefndarinnar mundu skila sérstökum umsögnum um málið.

4) Önnur mál Kl. 10:08
Nefndin ræddi hugmyndir að dagskrám næstu funda.
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 10:16