38. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 17. febrúar 2016
kl. 09:15
Mættir:
Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:15Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 09:15
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:15
Ásta Guðrún Helgadóttir (ÁstaH), kl. 09:15
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:40
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 09:15
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:15
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 09:15
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 09:30
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:15
Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:15
Frestað til næsta fundar.
2) 420. mál - Seðlabanki Íslands Kl. 09:20
Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður Alþingis mætti á fund nefndarinnar, fór yfir málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
3) 383. mál - fasteignalán til neytenda Kl. 10:00
Matthildur Sveinsdóttir frá Neytendastofu mætti á fund nefndarinnar, fór yfir umsögn Neytendastofu um málið og svaraði spurningum nefndarmanna.
4) 420. mál - Seðlabanki Íslands Kl. 10:30
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi og Ingi Magnússon frá embætti ríkisendurskoðanda mættu á fund nefndarinnar, fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
5) 383. mál - fasteignalán til neytenda Kl. 11:00
Hrannar Már Gunnarsson og Jóhannes Gunnlaugsson frá Neytendasamtökunum mættu á fund nefndarinnar, fóru yfir umsögn Neytendasamtakanna um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
6) Önnur mál Kl. 11:30
Fleira var ekki gert á fundinum.
Fundi slitið kl. 11:30