28. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 10. apríl 2018 kl. 09:10


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ) fyrir Oddnýju G. Harðardóttur (OH), kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:25
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:00
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE) fyrir Silju Dögg Gunnarsdóttur (SilG), kl. 09:10

Ólafur Þór Gunnarsson vék af fundi kl. 10:00.

Ágúst Ólafur Ágústsson vék af fundi kl. 10:15.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) 387. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 09:10
Nefndin fékk á sinn fund Leif Arnkel Skarphéðinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, sem kynnti málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 388. mál - Viðlagatrygging Íslands Kl. 09:30
Nefndin fékk á sinn fund Sóleyju Ragnarsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti sem kynnti málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 135. mál - upptaka samræmdrar vísitölu neysluverðs Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Karen Á. Vignisdóttur frá Seðlabanka Íslands og Heiðrúnu Eriku Guðmundsdóttur frá Hagstofu Íslands.

5) 14. mál - trygging gæða, hagkvæmni og skilvirkni opinberra fjárfestinga Kl. 10:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ingþór Karl Eiríksson frá Fjársýslu ríkisins.

6) Reglugerð (ESB) 2015/847 um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna Kl. 09:45
Nefndin fékk á sinn fund Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti og Áslaugu Jósepsdóttur frá dómsmálaráðuneyti, sem kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

7) Framseld reglugerð (ESB) 2018/212 sem breytir framseldri reglugerð (ESB) um viðbætur við tilskipun (ESB) 2015/849 um að bæta Sri Lanka, Trinidad og Tobago og Túnis við töflu í lið I í viðauka Kl. 09:45
Nefndin fékk á sinn fund Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti og Áslaugu Jósepsdóttur frá dómsmálaráðuneyti, sem kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

8) Framseld reglugerð (ESB) 2018/105 sem breytir framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 sem bætir Eþíópíu á lista yfir áhættusöm þriðju ríki í töflunni í 1. lið í viðauka AMLD IV Kl. 09:45
Nefndin fékk á sinn fund Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti og Áslaugu Jósepsdóttur frá dómsmálaráðuneyti, sem kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

9) Önnur mál Kl. 10:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:30