81. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, föstudaginn 29. maí 2020 kl. 09:20


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:20
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:20
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:20
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:20
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:20
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:20
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:20
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:20
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:20

Steinunn Þóra Árnadóttir vék af fundi kl. 9:50. Páll Magnússon var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var sameiginlegur fundur fjárlaganefndar og stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Hlutastarfaleiðin: Atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls Kl. 09:20
Til fundarins komu Skúli Eggert Þórðarson, Guðrún Jenný Jónsdóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir og Haraldur Guðmundsson frá Ríkisendurskoðun. Skýrsla stofnunarinnar Hlutastarfaleið-úttekt Ríkisendurskoðunar var kynnt og svöruðu gestirnir síðan spurningum nefndamanna um efni hennar.

2) Önnur mál Kl. 10:14
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:15
Fundargerð 80. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:16