3. fundur
fjárlaganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 12. október 2020 kl. 09:30


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:30
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 09:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:30
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:30
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:30
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:30

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 1. október sl.

Bókað:

1) Frumvarp til fjárlaga 2021 Kl. 09:30
Til fundarins komu Ásta Valdimarsdóttir, Runólfur Birgir Leifsson, Dagný Brynjólfsdóttir, Elsa B. Friðfinnsdóttir, Ásthildur Knútsdóttir og Hrönn Ottósdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Þau fóru yfir þá þætti frumvarpsins sem eru á ábyrgðarsviði ráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 2. mál - fjármálaáætlun 2021--2025 Kl. 09:30
Til fundarins komu Ásta Valdimarsdóttir, Runólfur Birgir Leifsson, Dagný Brynjólfsdóttir, Elsa B. Friðfinnsdóttir, Ásthildur Knútsdóttir og Hrönn Ottósdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Þau fóru yfir þá þætti þingsályktunarinnar sem eru á ábyrgðarsviði ráðuneytisins og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 11:14
Nefndin ræddi um verkefnin framundan. Fleira var ekki gert.

4) Fundargerð Kl. 11:25
Fundargerð 1. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:26