54. fundur
fjárlaganefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 5. maí 2023 kl. 13:04


Mætt:

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) formaður, kl. 13:04
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 13:04
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 13:04
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 13:04
Helgi Héðinsson (HHéð), kl. 13:04
Jóhann Páll Jóhannsson (JPJ), kl. 13:04
Sigurjón Þórðarson (SigurjÞ), kl. 13:04
Stefán Vagn Stefánsson (SVS), kl. 13:04
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 13:04

Vilhjálmur Árnason var fjarverandi vegna starfa á vegum Alþingis erlendis. Stefán Vagn Stefánsson vék af fundi kl. 14:57, Sigurjón Þórðarson kl. 15:00 og Bryndís Haraldsdóttir kl. 15:37.

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 894. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028 Kl. 13:04
Gunnar Haraldsson, Arna Olafsson og Þórunn Helgadóttir frá fjármálaráði. Þórunn tók þátt í fundinum með fjarfundabúnaði. Þau kynntu álitsgerð ráðsins og svöruðu spurningum úr efni hennar.
Kl. 15:10. Elísa Arna Hilmarsdóttir og Gunnar Úlfarsson frá Viðskiptaráði. Þau kynntu umsögn ráðsins og svöruðu spurningum um efni hennar.

2) Önnur mál Kl. 15:51
Björn Leví Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun: Undirritaður óskar eftir að Ríkisendurskoðun verði beðin um að fara yfir framkvæmd og stjórnsýslu ráðuneyta á lögum um opinber fjármál. Meiri hluti nefndarinnar tók ekki undir bókunina. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 15:52
Fundargerð 53. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 15:53