21. fundur
fjárlaganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 26. nóvember 2013 kl. 13:00


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 13:00
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 14:20
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD), kl. 13:13
Bjarkey Gunnarsdóttir (BjG), kl. 13:00
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 13:02
Karl Garðarsson (KG), kl. 13:00
Kristján L. Möller (KLM) fyrir OH, kl. 13:01
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 13:15

Helgi Hrafn Gunnarsson og Haraldur Benediktsson voru fjarverandi. Valgerður kom af fundi Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Fjármálastjórn Landbúnaðarháskóla Íslands Kl. 13:00
Mennta- og menningarmálaráðuneyti: Illugi Gunnarsson, Sigríður Hallgrímsdóttir, Þórarinn Sólmundsson og Gísli Magnússon. Farið var yfir fjárhagsleg málefni Landbúnaðarháskóla Íslands.

2) Breyting á lögum um markaðar tekjur Kl. 14:21
Velferðarráðuneyti: Hrönn Ottósdóttir, Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, Sturlaugur Tómasson og Margrét Björnsdóttir. Rætt var um frumvarp um markaðar tekjur.

3) Önnur mál Kl. 14:40
Fleiri mál voru ekki rædd.

4) Fundargerðir fjárlaganefndar á 143. þingi Kl. 14:51
Fundargerðin var samþykkt af öllum viðstöddum sem voru Vigdís Hauksdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Ásmundur Einar Daðason, Bjarkey Gunnarsdóttir, Brynhildur Pétursdóttir, Karl Garðarsson, Valgerður Gunnarsdóttir og Kristján Möller.

Fundi slitið kl. 14:55