65. fundur
fjárlaganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 3. júní 2014 kl. 09:30


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 09:37
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 09:46
Bjarkey Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:37
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:37

Haraldur Benediktsson var veikur. Ásmundur Einar Daðason, Karl Garðarsson, Oddný G. Harðardóttir, Valgerður Gunnarsdóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson áheyrnarfulltrúi voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 508. mál - opinber fjármál Kl. 09:32
Seðlabanki Íslands: Gunnar Gunnarsson. Farið var yfir umsögn bankans.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið: Þórhallur Arason, Jóhann Rúnar Björgvinsson, Ólafur Reynir Guðmundsson og Tómas Brynjólfsson. Farið var yfir umsögn ráðuneytisins.
Félag forstöðumanna ríkisstofnana: Steingrímur Ari Arason, Sveinn Margeirsson og Borghildur Erlingsdóttir.

2) Önnur mál Kl. 10:29
Formaður kynnti bréf sem fjármála- og efnahagsráðuneytinu verður sent þar sem þingsályktun um meginskiptingu útgjalda fjárlaga næsta árs kom ekki fram á 143. löggjafarþingi eins og tiltekið er í 25. gr. laga um þingsköp. Bréfið var samþykkt á fundinum mótatkvæðalaust.

3) Fundargerðir fjárlaganefndar á 143. þingi Kl. 14:32
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 14:35