43. fundur
fjárlaganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 2. mars 2016 kl. 08:30


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 08:30
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 08:30
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 08:30
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 08:30
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 08:30
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 08:30
Haraldur Einarsson (HE) fyrir Ásmund Einar Daðason (ÁsmD), kl. 08:30
Páll Jóhann Pálsson (PJP), kl. 08:30
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir (SEE) fyrir Ástu Guðrúnu Helgadóttur (ÁstaH), kl. 08:30
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 08:38

Haraldur Einarsson vék af fundi kl. 10:07, Valgerður Gunnarsdóttir kl. 12:27 og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir kl. 12:41.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) Búvörusamningar Kl. 08:35 - Opið fréttamönnum
Frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu komu til fundar við nefndina kl. 8:30 Ólafur Friðriksson, Rebekka Hilmarsdóttir og Sigurgeir Þorgeirsson. Rætt var um gildandi búvörusamninga og nýir búvörusamningar kynntir. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna.
Fundurinn var síðan opinn fjölmiðlum.
Frá Bændasamtökum Íslands mættu til fundarins kl.9:30 Sindri Sigurgeirsson og Sigurður Eyþórsson. Þeir ræddu um búvörusamningana og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Eftirtaldir aðilar komu til fundarins kl. 11.00. Þorsteinn Víglundsson og Halldór Árnason frá Samtökum atvinnulífsins og Andrés Magnússon frá Samtökum verslunar og þjónustu. Lögð fram greining frá Daða Má Kristóferssyni Háskóla Íslands sem ber heitið: „Er hagsmuna neytenda gætt í nýjum búvörusamningum?“ Gestirnir veittu umsögn um nýju búvörusamningana og svöruðu spurningum nefndarmanna.
Eftirtaldir aðilar komu til fundarins kl. 12.00. Frá Félagi atvinnurekenda komu Ólafur Stephensen og Páll Rúnar M. Kristjánsson, frá Viðskiptaráði Íslands komu Frosti Ólafsson og Björn Brynjúlfur Björnsson,frá Alþýðusambandi Íslands Gylfi Arnbjörnsson og frá Neytendasamtökunum Teitur Atlason. Gestirnir veittu umsögn um nýju búvörusamningana og svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál Kl. 12:46
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 12:47
Fundargerð 42. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 12:48