33. fundur
fjárlaganefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 16. apríl 2018 kl. 09:30


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:30
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 09:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:30
Ingibjörg Þórðardóttir (IÞ) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 09:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NF), kl. 09:36
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:30
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:30
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 09:30

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 494. mál - fjármálaáætlun 2019--2023 Kl. 09:30
Til fundarins komu Sigurður Páll Ólafsson, Elín Guðjónsdóttir, Guðrún Þorleifsdóttir, Margrét Svavarsdóttir, Dóróthea Jóhannsdóttir og Björn Þór Hermannsson. Þau kynntu efnahagshorfur og efnahagsleg viðfangsefni í tengslum við fjármálaáætlunina og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

2) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:06
Fundargerð 32. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:07