31. fundur
fjárlaganefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 12. desember 2018 kl. 12:04


Mættir:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 12:04
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 12:04
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 12:04
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 12:04
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 12:04
Brynjar Níelsson (BN) fyrir Pál Magnússon (PállM), kl. 12:04
Ellert B. Schram (EBS) fyrir Ágúst Ólaf Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 12:04
Inga Sæland (IngS), kl. 12:04
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 12:04
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 12:04

Páll Magnússon kom til fundarins kl. 12:14 og vék þá Brynjar Nielsson af fundinum.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 437. mál - fjáraukalög 2018 Kl. 12:04
Lagt var fram nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar ásamt breytingatillögum. Samþykkt af meiri hlutanum en hann skipa Willum Þór Þórsson, Haraldur Benediktsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Páll Magnússon og Njáll Trausti Friðbertsson. Minni hlutinn sat hjá. Hann skipa Björn Leví Gunnarsson og Birgir Þórarinsson sem munu leggja fram sitt hvort nefndarálitið og Ellert B. Schram og Inga Sæland.

2) Önnur mál Kl. 12:30
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 12:31
Fundargerð 30. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 12:33