54. fundur
fjárlaganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, mánudaginn 29. apríl 2024 kl. 09:55


Mætt:

Stefán Vagn Stefánsson (SVS) formaður, kl. 09:55
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:55
Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 2. varaformaður, kl. 09:55
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:55
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 09:55
Kristrún Frostadóttir (KFrost), kl. 09:55
Teitur Björn Einarsson (TBE), kl. 09:55
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:55

Jóhann Friðrik Friðriksson var fjarverandi. Vilhjálmur Árnason vék af fundi kl. 11.00 og Jódís Skúladóttir kl. 11:07.

Nefndarritarar:
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1035. mál - fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029 Kl. 09:55
Til fundarins kom Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Með honum komu Runólfur Birgir Leifsson og Guðmann Ólafsson frá heilbrigðisráðuneytinu. Ráðherra kynnti þann hluta fjármálaáætlunarinnar sem er á ábyrgðarsviði ráðuneytisins. Síðan svöruðu gestirnir spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál Kl. 11:36
Samþykkt var að senda mál nr. 919, opinber innkaup (markviss innkaup, stofnanaumgjörð) til umsagnar. Samþykkt var skv. 1. mgr. 24. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblöðum um breytt framtíðaráform um fjármögnun hjúkrunarheimila, um þróun veikindadaga og ársverka hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri o.fl. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 11:39
Fundargerð 53. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 11:40