44. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 16. mars 2021 kl. 09:02


Mætt:

Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) formaður, kl. 09:02
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:02
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:02
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:02
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:02
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:02
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:02
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:02

Líneik Anna Sævarsdóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:49
Umfjöllun um fundargerð 43. fundar var frestað.

2) 466. mál - stjórnarskrá lýðveldisins Íslands Kl. 09:02
Á fund nefndarinnar mættu Auður Önnu Magnúsdóttir og Tryggvi Felixson frá Landvernd. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar mættu einnig Hlín Gísladóttir og Sigrún Ágústsdóttir frá Umhverfistofnun. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar mættu jafnframt Drífa Snædal og Róbert Farestveit frá Alþýðusambandi Íslands. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Að lokum mættu Agla Eir Vilhjálmsdóttir og Svanhildur Hólm Valsdóttir frá Viðskiptaráði Íslands. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 09:49
Fleira var ekki gert.

Hlé var gert á fundi frá kl. 09:29-09:32 og 10:19-10:30.

Fundi slitið kl. 11:00