4. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 10. október 2022 kl. 09:33


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:33
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:33
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:33
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (ArnG), kl. 09:33
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:33
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:33
Elsa Lára Arnardóttir (ELA) fyrir Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur (LRS), kl. 09:33
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:33
Iða Marsibil Jónsdóttir (IMJ) fyrir Höllu Signýju Kristjánsdóttur (HSK), kl. 09:33

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Sigmar Guðmundsson tóku þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:34
Fundargerð 3. fundar var samþykkt.

2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar. Landeyjarhöfn - Framkvæmda- og rekstrarkostnaður - Stjórnsýsluúttekt. Skýrsla til Alþingis Kl. 09:35
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt.

Að áliti nefndarinnar standa allir viðstaddir nefndarmenn.

3) Skipun embættismanna án auglýsingar Kl. 09:43
Nefndin fjallaði um málið.

4) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 10:35
Á fundinum var könnuð tilkynning landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur, sem hlaut kosningu sem 3. varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningunum 25. september 2021. Tilkynningin er gefin út í samræmi við 113. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Jönu Salóme Ingibjargar Jósepsdóttur.

5) Önnur mál Kl. 10:37
Fleira var ekki gert.

Hlé var gert á fundi frá kl. 10:15-10:35

Fundi slitið kl. 10:38