36. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 20. febrúar 2023 kl. 09:30


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:30
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:30
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:30
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:30
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:30
Friðrik Már Sigurðsson (FriðS), kl. 09:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:30
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:30
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) fyrir Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur (ArnG), kl. 09:47

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerðir 34. og 35. fundar voru samþykktar.

2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýsla og eftirlit Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra, Kolbein Árnason skrifstofustjóra, Berglindi Häsler, Hjalta Jón Guðmundsson og Kristján Frey Helgason frá matvælaráðuneyti.

3) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 10:40
Á fundinum var könnuð tilkynning landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Viðars Eggertssonar, sem hlaut kosningu sem 3. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður í alþingiskosningunum 25. september 2021. Tilkynningin er gefin út í samræmi við 113. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Viðars Eggertssonar.

4) Önnur mál Kl. 10:41
Nefndin fjallaði um sérstaka umræðu um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi sem var á dagskrá 65. þingfundar.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:44