42. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, mánudaginn 18. mars 2024 kl. 09:16


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:16
Sigmar Guðmundsson (SGuðm) 2. varaformaður, kl. 09:16
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:16
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:16
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:16
Hildur Sverrisdóttir (HildS), kl. 09:20
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 09:16
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:19

Ágúst Bjarni Garðarsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:16
Fundargerðir 40. og 41. fundar voru samþykktar.

2) Skýrsla Ríkisendurskoðunar - Fangelsismálastofnun - Aðbúnaður - endurhæfing - árangur. Stjórnsýsluúttekt, skýrsla til Alþingis nóvember 2023 Kl. 09:16
Nefndin fjallaði um málið.

3) Könnun á kosningu varaþingmanns og kjörgengi Kl. 10:27
Nefndin kannaði tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu og kjörgengi Rafns Helgasonar sem hlaut kosningu sem 4. varaþingmaður Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, í alþingiskosningunum 25. september 2021. Ekki voru gerðar athugasemdir við tilkynninguna og var nefndin einhuga um að mæla með staðfestingu kosningar Rafns Helgasonar.

4) Önnur mál Kl. 10:28
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:28