3. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 11. október 2013 kl. 10:00
Opinn fundur


Mættir:

Ögmundur Jónasson (ÖJ) formaður, kl. 10:00
Brynjar Níelsson (BN) 1. varaformaður, kl. 10:45
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) 2. varaformaður, kl. 10:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ) fyrir BP, kl. 10:00
Helgi Hjörvar (HHj), kl. 10:00
Páll Jóhann Pálsson (PJP) fyrir SigrM, kl. 10:00
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 10:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) fyrir PHB, kl. 10:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 10:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS) fyrir KG, kl. 10:00

Nefndarritari: Hildur Eva Sigurðardóttir

Bókað:

1) Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl. Kl. 10:00
Nefndin fékk á sinn fund Sigurð Þórðarson fyrrverandi ríkisendurskoðandi sem gerði grein fyrir sjónarmiðum sínum varðandi skýrsluna og svaraði spurningum nefndarmanna.

Þá fékk nefndin á sinn fund Pál Gunnar Pálsson fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins sem gerði einnig grein fyrir sínum sjónarmiðum um skýrslunar og svaraði spurningum nefndarmanna.

Fundurinn var opinn í samræmi við 3. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, og var því bein útsending frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Fundi slitið kl. 12:13

Upptaka af fundinum